Afnotamiss­is­trygging hunda

Góð trygging fyrir alla sem eiga sérþjálf­aðan hund eða hund sem notaður er í kynbóta­ræktun. Ef hund­urinn þinn er tryggður með afnotamiss­is­trygg­ingu færð þú greiddar bætur ef hund­urinn tapar eigin­leikum sínum til kynbóta­rækt­unar eða sérþjálfaðs hlut­verks. Afnotamiss­is­trygg­ingu hunda getur þú einungis keypt með líftrygg­ingu hunda.

  • Kaup­tíma­bil: Þegar hundur er á aldr­inum 8 vikna til 5 ára.

  • Fjár­hæð: Fjárhæð afnotamiss­is­trygg­ingar hunda er jafnhá fjárhæð líftrygg­ingar hunds­ins, að frádregnum 50.000 kr. Fjár­hæðin helst óskert þar til hund­urinn verður 7 ára en þá lækkar hún um 20% árlega.

  • Gild­is­tími: Þegar hund­urinn verður 10 ára fellur trygg­ingin niður og endur­nýjast ekki. Ef greiddar eru út bætur úr afnotamiss­is­trygg­ingu hunds fellur líftrygging hundsins og sjúkra­kostn­að­ar­trygging hans niður á tjóns­degi. Ef þú vilt hafa þessar trygg­ingar áfram í gildi fyrir hundinn verður þú að sækja um þær aftur. Trygg­ing­arnar eru þó einungis í boði ef hund­urinn er yngri en 5 ára. Ef ábyrgð­ar­trygging og umönn­un­ar­trygging eru til staðar þegar greiddar eru bætur úr afnotamiss­is­trygg­ingu, halda þær gildi sínu.

Tryggingin bætir

Kynbóta­ræktun

  • Ef hundur tapar frjó­semi vegna sjúk­dóms í legi, eggja­stokkum, blöðru­hálskirtli eða eistum.

  • Ef tvær sæðis­frumutaln­ingar með minnst 6 mánaða milli­bili sýna að hundur sé ófrjór.

  • Ef ekki er lengur hægt að nota hund til rækt­unar vegna mjaðma­loss, liðbólgu í mjaðmalið, misvaxtar í olnboga eða liðbólgu í olnboga. Það er skil­yrði að hundur hafi verið með afnotamiss­is­trygg­ingu hjá VÍS, samfellt frá að minnsta kosti fjög­urra mánaða aldri.

  • Ef tík verður ekki hvolpa­full eftir mökun við tvo hunda sem áður hafa verið frjó­samir.

Sérþjálf­aðir hundar

  • Ef hundur tapar sann­an­lega og til fram­búðar eigin­leikum sínum sem nauð­syn­legir eru svo hann geti sinnt sérþjálfuðu hlut­verki sínu vegna slyss eða sjúk­dóms.

Tryggingin bætir ekki

Kynbóta­ræktun

  • Afnotamissi vegna sjúk­dóma sem voru til staðar eða slysa sem urðu áður en trygg­ingin tók gildi.

  • Afnotamissi vegna tíkur sem hefur þrisvar átt hvolpa.

  • Afnotamissi vegna hunds sem hefur náð 6 ára aldri og aldrei eignast hvolpa.

  • Afnotamissi vegna geðsjúk­dóma, atferl­is­brests eða skap­gerð­argalla.

  • Afnotamissi vegna slyss sem varð vegna þess að hundur var bundinn við ökutæki, laus í ökutæki eða yfir­gefinn í ökutæki eða á palli tengdu því.

Sérþjálf­aðir hundar

  • Afnotamissi vegna sjúk­dóma sem voru til staðar eða slysa sem urðu áður en trygg­ingin tók gildi.

  • Afnotamissi vegna hunds sem ekki er lengur hægt að nota í sérþjálfað hlut­verk vegna mjaðmar­loss, liðbólgu í mjaðmarlið, olnboga­loss, liðbólgu í olnboga, beinklökkva, bein- eða brjóskkvelli.

  • Afnotamissi vegna smit­andi lifr­ar­bólgu.

  • Afnotamissi vegna geðsjúk­dóma, atferl­is­brests eða skap­gerð­argalla.

  • Afnotamissi vegna slyss sem varð vegna þess að hundur var bundinn við ökutæki, laus í ökutæki eða yfir­gefinn í ökutæki.

  • Vinsam­legast athugaðu að umfjöllun um trygg­inguna er ekki tæmandi. Nánari upplýs­ingar er að finna í skil­mála trygg­ing­ar­innar.

  • Sé ósam­ræmi milli umfjöll­un­ar­innar og skil­málans þá gildir skil­mál­inn.

Skil­málar og aðrar upplýs­ingar

Trygg­inga­skil­málar eru samn­ingur þinn við VÍS. Mikil­vægt er að þú kynnir þér skil­málana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en trygg­ingin er tekin.

Í upplýs­inga­skjali er að finna stutta saman­tekt á helstu þáttum trygg­ing­ar­innar. Upplýs­inga­skjöl eru stöðluð skjöl sem öllum trygg­inga­fé­lögum ber að birta og auðveldar þannig viðskipta­vinum trygg­inga­fé­lag­anna að bera saman trygg­ingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Forvarnir

Heimilið

Eldri borgarar

75% slysa eldri borg­ara eru heima- og frí­tíma­slys og verða þrjú af hverj­um fjór­um þeirra inni á heim­il­um, sam­kvæmt töl­um frá Land­læknisembætt­inu. Fall er al­geng­asta ástæða slys­anna.

Lesa meira

Heimilið

Börn

Börn lenda oft í til­vilj­ana­kennd­um óhöpp­um þegar þau reyna á hæfni sína. Margt er hægt að gera til að minnka líkur á þessum slysum. Passa þarf bara að forvarnir séu í takt við aldur og umhverfi barnsins. Gagn­legt er að fara yfir heim­ilið með gátlista til að átta sig á því eft­ir hverju á að horfa og hvar hætt­urn­ar geta verið. 

Lesa meira

Heimilið

Húsfélög og forvarnir

Gott er að hafa tryggingar og forvarnir á dagskrá húsfundar a.m.k. einu sinni á ári. Upplýsa þarf íbúa um hvar húsfélagið er tryggt, hvernig eigi að tilkynna tjón, spyrja út í hvort tjón hafi orðið og ræða helstu forvarnir. Mikilvægt er að muna að tjón í einni íbúð getur haft áhrif á aðrar íbúðir.

Lesa meira

Heimilið

Heimilisdýr

Algengustu heimilisdýrin eru án efa hundar og kettir. Þau gefa eiganda sinum mikið og eru oft á tíðum stór partur af fjölskyldunni. Góð umhirða þeirra er mikilvæg til að þeim líði vel.

Lesa meira

Heimilið

Innbrot

Oft á tíðum er and­lega van­líðan og óör­yggið sem fylg­ir því að brot­ist er inn á heim­ilið mun verra en tjónið og mun­ir sem hverfa í inn­brot­inu. Reynsl­an hef­ur sýnt að inn­brot eru oft skipu­lögð. Þjóf­ar eru oft­ast að leita eft­ir hlut­um sem auðvelt er að koma í verð eins og mynda­vél­um, far­tölv­um, sím­um, spjald­tölv­um, flat­skjá­um, pen­ing­um og skart­grip­um.

Lesa meira

Heimilið

Varnir gegn vatnstjóni

Á hverj­um degi verða um 20 vatns­tjón hér á landi og er kostnaður þeirra um þrír millj­arðar. Bara til VÍS ber­ast 5,5 vatns­tjónstil­kynn­ing­ar á hverj­um degi og má sjá hvernig tjón­in skipt­ast niður hér. Þótt marg­ir séu vel tryggðir fylg­ir mikið rask slík­um tjón­um og oft á tíðum get­ur verið ógjörn­ing­ur að bæta ómet­an­lega hluti sem skemm­ast.

Lesa meira

Heimilið

Eldvarnir

Um helm­ing­ur bruna á heim­il­um teng­ist raf­magni og raf­magns­tækj­um. Þar af er helm­ing­ur út frá elda­vél­um eða 25% allra bruna á heim­il­um. Í kring­um jól og ára­mót eru brun­ar tengd­ir kert­um og kertaskreyt­ing­um al­geng­ast­ir. Í Hand­bók heim­il­is­ins um eld­varn­ir sem Eld­varna­banda­lagið gaf út eru upplýsingar sem all­ir ættu að kynna sér. Bókina er einnig hægt að nálgast á ensku og pólsku.

Lesa meira

Heimilið

Heitir pottar

Mik­il­vægt er að huga vel að börn­um og þar sem heit­ir pott­ar, sund­laug­ar, vötn, ár eða annað vatn er. Muna að ung börn geta drukknað í 2-5 sm djúpu vatni og að drukkn­un er oft­ast hljóðlát.

Lesa meira

Heimilið

Trampólín

Að hoppa á trampólíni er frá­bær lík­ams­rækt sem eyk­ur þol, jafn­vægi, sam­hæf­ingu og styrk. Því miður eru þó slys við leik á trampólín­um al­geng og mörg þeirra al­var­leg.

Lesa meira

Heimilið

Moka og salta

Á veturna getur verið erfitt að fóta sig í hálku og snjó. Þá getur góður skóbúnaður og mannbroddar skipt sköpum til að koma í veg fyrir fall.

Lesa meira

Ef þú ert með dýra­trygg­ingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftir­far­andi trygg­ingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.