Sjúkra­kostn­að­ar­trygging katta

Góð trygg­ing fyr­ir alla katt­ar­eig­end­ur. Ef þú ert með þessa trygg­ingu færðu greidd­ar bæt­ur vegna lækn­is­kostnaðar í kjöl­far sjúk­dóms eða slyss.

  • Kaup­tíma­bil: Þegar köttur er á aldr­inum 8 vikna til 5 ára.

  • Trygg­ing­ar­fjár­hæð: Trygg­ing­ar­fjár­hæð sjúkra­kostnaðartrygg­ing­ar katta er föst fjárhæð sem kemur fram í tilboði, á skír­teini og endur­nýj­un­ar­kvittun. Trygg­ing­ar­fjár­hæðin helst óskert þar til kött­urinn verður 7 ára en þá lækkar hún um 20% árlega.

  • Gild­is­tími: Þegar kött­urinn verður 10 ára fellur trygg­ingin niður og endur­nýjast ekki.

  • Eig­in áhætta: Þú berð eigin áhættu af hverju tjóni sem þú færð greitt úr sjúkra­kostn­að­ar­trygg­ingu katta. Eigin áhætta þín er föst fjárhæð auk 10% af lækn­is­kostn­aði. Þú þarft ekki að greiða föstu fjár­hæðina aftur vegna sjúkra­kostn­aðar, óháð fjölda heim­sókna til dýra­læknis, fyrr en að 100 dögum liðnum frá fyrstu heim­sókn. Upplýs­ingar um eigin áhættu þína koma fram á tilboði, skír­teini og endur­nýj­un­ar­kvittun.

Tryggingin bætir

  • Lækn­is­kostnað vegna skoð­unar og meðferðar vegna sjúk­dóms eða slyss.

  • Lækn­is­kostnað vegna keis­ara­skurðar sem er lækn­is­fræði­lega nauð­syn­legur, þó aldrei fleiri en tvo á hverja læðu.

  • Lækn­is­kostnað vegna geld­ingar eða ófrjó­sem­is­að­gerðar sem er lækn­is­fræði­lega nauð­synleg vegna ákveð­inna sjúk­dóma.

  • Lækn­is­kostnað vegna lýta­lækn­inga sem eru lækn­is­fræði­lega nauð­syn­legar.

  • Lækn­is­kostnað vegna meðhöndl­unar á tönnum sem brotna vegna slyss.

Tryggingin bætir ekki

  • Lækn­is­kostnað vegna sjúk­dóma sem voru til staðar eða slysa sem urðu áður en trygg­ingin tók gildi.

  • Lækn­is­kostnað vegna fyrir­byggj­andi aðgerða og reglu­legra skoð­ana.

  • Lækn­is­kostnað vegna geðsjúk­dóma, atferl­is­brests eða skap­gerð­argalla.

  • Lækn­is­kostnað vegna álags á lækn­is­kostnað ef kalla þarf dýra­lækni til utan dagvinnu­tíma nema brýna nauðsyn beri til.

  • Lækn­is­kostnað vegna segulóm­skoð­unar og sneið­mynda­töku.

  • Lækn­is­kostnað vegna sjúk­dóma í tann­holdi, tann­hirðu, tann­við­gerða eða galla í tönnum.

  • Kostnað vegna fóðurs, fæðu­bót­ar­efnis eða heilsu- og hrein­lætis­vara.

  • Ferða- og flutn­ings­kostnað vegna meðferðar og skoð­unar.

  • Kostnað vegna sjúkra­þjálf­unar og endur­hæf­ingar.

  • Kostnað vegna lyfseðla, reikn­ings­gerðar, vott­orða eða sjúkra­skýrslu.

  • Vinsam­legast athugaðu að umfjöllun um trygg­inguna er ekki tæmandi. Nánari upplýs­ingar er að finna í skil­mála trygg­ing­ar­innar.

  • Sé ósam­ræmi milli umfjöll­un­ar­innar og skil­málans þá gildir skil­mál­inn.

Skil­málar og aðrar upplýs­ingar

Trygg­inga­skil­málar eru samn­ingur þinn við VÍS. Mikil­vægt er að þú kynnir þér skil­málana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en trygg­ingin er tekin.

Í upplýs­inga­skjali er að finna stutta saman­tekt á helstu þáttum trygg­ing­ar­innar. Upplýs­inga­skjöl eru stöðluð skjöl sem öllum trygg­inga­fé­lögum ber að birta og auðveldar þannig viðskipta­vinum trygg­inga­fé­lag­anna að bera saman trygg­ingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Forvarnir

Heimilið

Eldri borgarar

75% slysa eldri borg­ara eru heima- og frí­tíma­slys og verða þrjú af hverj­um fjór­um þeirra inni á heim­il­um, sam­kvæmt töl­um frá Land­læknisembætt­inu. Fall er al­geng­asta ástæða slys­anna.

Lesa meira

Heimilið

Börn

Börn lenda oft í til­vilj­ana­kennd­um óhöpp­um þegar þau reyna á hæfni sína. Margt er hægt að gera til að minnka líkur á þessum slysum. Passa þarf bara að forvarnir séu í takt við aldur og umhverfi barnsins. Gagn­legt er að fara yfir heim­ilið með gátlista til að átta sig á því eft­ir hverju á að horfa og hvar hætt­urn­ar geta verið. 

Lesa meira

Heimilið

Húsfélög og forvarnir

Gott er að hafa tryggingar og forvarnir á dagskrá húsfundar a.m.k. einu sinni á ári. Upplýsa þarf íbúa um hvar húsfélagið er tryggt, hvernig eigi að tilkynna tjón, spyrja út í hvort tjón hafi orðið og ræða helstu forvarnir. Mikilvægt er að muna að tjón í einni íbúð getur haft áhrif á aðrar íbúðir.

Lesa meira

Heimilið

Heimilisdýr

Algengustu heimilisdýrin eru án efa hundar og kettir. Þau gefa eiganda sinum mikið og eru oft á tíðum stór partur af fjölskyldunni. Góð umhirða þeirra er mikilvæg til að þeim líði vel.

Lesa meira

Heimilið

Innbrot

Oft á tíðum er and­lega van­líðan og óör­yggið sem fylg­ir því að brot­ist er inn á heim­ilið mun verra en tjónið og mun­ir sem hverfa í inn­brot­inu. Reynsl­an hef­ur sýnt að inn­brot eru oft skipu­lögð. Þjóf­ar eru oft­ast að leita eft­ir hlut­um sem auðvelt er að koma í verð eins og mynda­vél­um, far­tölv­um, sím­um, spjald­tölv­um, flat­skjá­um, pen­ing­um og skart­grip­um.

Lesa meira

Heimilið

Varnir gegn vatnstjóni

Á hverj­um degi verða um 20 vatns­tjón hér á landi og er kostnaður þeirra um þrír millj­arðar. Bara til VÍS ber­ast 5,5 vatns­tjónstil­kynn­ing­ar á hverj­um degi og má sjá hvernig tjón­in skipt­ast niður hér. Þótt marg­ir séu vel tryggðir fylg­ir mikið rask slík­um tjón­um og oft á tíðum get­ur verið ógjörn­ing­ur að bæta ómet­an­lega hluti sem skemm­ast.

Lesa meira

Heimilið

Eldvarnir

Um helm­ing­ur bruna á heim­il­um teng­ist raf­magni og raf­magns­tækj­um. Þar af er helm­ing­ur út frá elda­vél­um eða 25% allra bruna á heim­il­um. Í kring­um jól og ára­mót eru brun­ar tengd­ir kert­um og kertaskreyt­ing­um al­geng­ast­ir. Í Hand­bók heim­il­is­ins um eld­varn­ir sem Eld­varna­banda­lagið gaf út eru upplýsingar sem all­ir ættu að kynna sér. Bókina er einnig hægt að nálgast á ensku og pólsku.

Lesa meira

Heimilið

Heitir pottar

Mik­il­vægt er að huga vel að börn­um og þar sem heit­ir pott­ar, sund­laug­ar, vötn, ár eða annað vatn er. Muna að ung börn geta drukknað í 2-5 sm djúpu vatni og að drukkn­un er oft­ast hljóðlát.

Lesa meira

Heimilið

Trampólín

Að hoppa á trampólíni er frá­bær lík­ams­rækt sem eyk­ur þol, jafn­vægi, sam­hæf­ingu og styrk. Því miður eru þó slys við leik á trampólín­um al­geng og mörg þeirra al­var­leg.

Lesa meira

Heimilið

Moka og salta

Á veturna getur verið erfitt að fóta sig í hálku og snjó. Þá getur góður skóbúnaður og mannbroddar skipt sköpum til að koma í veg fyrir fall.

Lesa meira

Ef þú ert með dýra­trygg­ingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftir­far­andi trygg­ingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.