Sjúkrakostnaðartrygging hesta
Sjúkrakostnaðartrygging hesta er góð trygging fyrir alla hestaeigendur. Ef þú ert með þessa tryggingu færðu greiddar bætur vegna lækniskostnaðar í kjölfar sjúkdóms eða slyss.
- Kauptímabil: Þú getur keypt trygginguna þar til hesturinn er 15 vetra gamall.
- Vottorð: Ef hesturinn hefur náð 5 vetra aldri þarf vottorð frá dýralækni um almennt heilsufar hestsins að fylgja umsókn um trygginguna. Vottorðið verður að vera innan við 30 daga gamalt og skrifað á eyðublað frá VÍS.
- Tryggingarfjárhæð: Tryggingarfjárhæð sjúkrakostnaðartryggingar hesta er föst fjárhæð sem kemur fram á tilboði, skírteini og endurnýjunarkvittun. Tryggingarfjárhæðin helst óskert þar til hesturinn verður 19 vetra gamall en þá lækkar hún um 20% árlega.
- Gildistími: Þegar hesturinn verður 23 vetra gamall fellur tryggingin niður og endurnýjast ekki.
- Eigin áhætta: Þú berð eigin áhættu af hverju tjóni sem þú færð greitt úr sjúkrakostnaðartryggingu hesta. Eigin áhætta þín er föst fjárhæð auk 10% af lækniskostnaði. Þú þarft ekki að greiða föstu fjárhæðina aftur vegna lækniskostnaðar, óháð fjölda heimsókna til dýralæknis, fyrr en að 100 dögum liðnum frá fyrstu heimsókn. Upplýsingar um eigin áhættu þína koma fram á tilboði, skírteini og endurnýjunarkvittun.
Tryggingin bætir
- Lækniskostnað vegna skoðunar og meðferðar vegna sjúkdóms eða slyss.
- Lækniskostnað vegna bæklunaraðgerða vegna fæðingargalla folalds til 1 og 1/2 árs aldurs vegna ákveðinna sjúkdóma.
- Lækniskostnað vegna folalds, frá kasti í allt að 30 daga, ef hryssa er líftryggð.
- Lækniskostnað vegna meðferðar við tannrótarbólgu og meðhöndlun á tönnum sem brotna vegna slyss.
Tryggingin bætir ekki
- Kostnað vegna sjúkraþjálfunar og endurhæfingar.
- Kostnað vegna fóðurs, fæðubótarefnis og heilsu- og hreinlætisvara.
- Lækniskostnað vegna sjúkdóma eða slysa sem áttu sér upphaf áður en tryggingin tók gildi.
- Lækniskostnað vegna sjúkdóma sem hestur fær innan 20 daga frá gildistöku tryggingarinnar.
- Lækniskostnað vegna segulómskoðunar og sneiðmyndatöku.
- Lækniskostnað vegna fyrirbyggjandi aðgerða og reglulegra skoðana.
- Lækniskostnað vegna geldingar eða skurðaðgerðar vegna launeista.
- Lækniskostnað vegna meðferðar til að fylja hryssu.
- Lækniskostnað vegna skoðunar eða meðferðar á tönnum og aðgerðar við að fjarlægja úlfatennur.
- Lækniskostnað vegna geðslagsvandamála.
- Lækniskostnað vegna álags á lækniskostnað ef kalla þarf til dýralækni utan dagvinnutíma nema brýna nauðsyn beri til.
- Kostnað vegna lyfseðla, reikningsgerðar, vottorða eða sjúkraskýrslu.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.