Líftrygging katta
Góð trygging fyrir alla kattareigendur. Ef þú ert með þessa tryggingu færðu greiddar bætur ef köttur deyr af völdum slyss eða sjúkdóms eða ef aflífun er ráðlögð af dýralækni.
- Kauptímabil: Þegar köttur er á aldrinum 8 vikna til 5 ára.
- Tryggingarfjárhæð:Tryggingarfjárhæð líftryggingar katta er valfrjáls fjárhæð. Gott er að hafa í huga að bætur geta aldrei orðið hærri en markaðsvirði kattarins á tjónsdegi. Ef þú vilt líftryggja kött fyrir hærri fjárhæð en 80.000 kr. verður kötturinn að vera ættbókarfærður hjá Kynjaköttum. Tryggingarfjárhæðin helst óskert þar til kötturinn verður 7 ára en þá lækkar hún um 20% árlega.
- Gildistími: Þegar kötturinn verður 10 ára fellur tryggingin niður og endurnýjast ekki.
Tryggingin bætir
- Ef köttur deyr af völdum sjúkdóms eða slyss.
- Ef aflífun er ráðlögð af dýralækni.
Tryggingin bætir ekki
- Dauða eða aflífun vegna sjúkdóma sem voru til staðar eða slysa sem urðu áður en tryggingin tók gildi.
- Dauða eða aflífun vegna geðsjúkdóma, atferlisbrests eða skapgerðargalla.
- Dauða eða aflífun vegna krónísks smitsjúkdóms þar sem köttur er einkennalaus.
- Aflífun vegna fyrirmæla opinberra yfirvalda.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.