- Brunatrygging húseigna í smíðum er tekin á meðan á byggingarframkvæmdum stendur, áður en brunabótamat er komið á eignina.
- Mikilvægt er að þú óskir eftir brunabótamati nýbyggingar, ekki seinna en fjórum vikum eftir að húseignin hefur verið tekin í notkun.
- Við mælum með því að þú kynnir þér byggingatryggingu ef þú vilt tryggja húseignina þína enn betur.
Tryggingin bætir
- Tjón af völdum eldsvoða, eldingar og sprengingar.
- Tjón af völdum skyndilegs sótfalls.
- Tjón af völdum loftfara og hluta sem frá þeim falla.
- Tjón af völdum slökkvi- og björgunaraðgerða til að forðast eða takmarka tjón.
Tryggingin bætir ekki
- Skemmdir sem verða ef hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
- Tjón vegna sóts eða reyks sem safnast hefur smám saman, svo sem sót frá reykháfi eða kertum.
- Óbeint tjón, svo sem rekstrartap, töf á framleiðslu eða afhendingu vöru, missi húsaleigutekna og þess háttar.
- Kostnað vegna hreinsunar úrgangs- eða eiturefna í umhverfi eða jarðvegi vegna bótaskylds atburðar.
Trygging frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands er einnig innifalin. Sú trygging bætir tjón vegna eldgosa, jarðskjálfta, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.