Hoppa yfir valmynd

Umönnunartrygging hunda

Góð trygging fyrir alla hundaeigendur. Ef þú ert með þessa tryggingu færðu greiddar bætur vegna vistunar og gæslu hunds á dýrahóteli ef þú eða annar fjölskyldumeðlimur sem býr á sama stað slasast eða veikist svo alvarlega að ekki er hægt að veita hundinum þá umönnun sem hann þarfnast.

  • Kaup­tíma­bil: Frá 8 vikna aldri hunds.
  • Trygg­ing­ar­fjár­hæð: Trygg­ing­ar­fjár­hæð umönn­un­ar­trygg­ing­ar hunda er föst fjárhæð sem kemur fram á tilboði, skírteini og endurnýjunarkvittun.
  • Gild­is­tími: Tryggingin gildir þar til henni er sagt upp. Bótatími er að hámarki 60 dagar á hverju tryggingartímabili.

Tryggingin bætir

  • Kostnað vegna vistunar og gæslu hunds á dýrahóteli eða sambærilegri stofnun ef þú eða annar fjölskyldumeðlimur sem býr á sama stað slasast eða veikist svo alvarlega að ekki er hægt að veita hundinum þá umönnun sem hann þarfnast.

Tryggingin bætir ekki

  • Kostnað vegna vistunar vegna sjúkdóma eða meiðsla sem voru til staðar hjá þér og fjölskyldunni áður en tryggingin tók gildi.
  • Kostnað vegna vistunar vegna viðvarandi sjúkdómsástands einhvers í fjölskyldunni.
  • Kostnað vegna vistunar vegna atvika sem tengjast meðgöngu eða fæðingu.
  • Kostnað vegna vistunar vegna veikinda sem rekja má til misnotkunar áfengis, lyfja eða áverka sem þú veldur sjálfum þér.
  • Kostnað vegna vistunar vegna ofnæmis fjölskyldumeðlima fyrir hundinum.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Skilmálar og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Aðrar upplýsingar
Forvarnir
Heimilið

Heimilisdýr

Algengustu heimilisdýrin eru án efa hundar og kettir. Þau gefa eiganda sinum mikið og eru oft á tíðum stór partur af fjölskyldunni. Góð umhirða þeirra er mikilvæg til að þeim líði vel.
Lesa meira

Ef þú ert með dýratryggingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

Fjölskyldu- og innbústryggingar

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

Fasteignatryggingar

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

Ökutækjatryggingar

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

Líf- og heilsutryggingar

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

Ferðatryggingar