Sjúkrakostnaðartrygging erlendis
Sendu okkur fyrirspurn ef þú vilt fá verð í sjúkrakostnaðartryggingu erlendis.
Ef þú vilt fá verð í aðrar tryggingar bendum við á netverslunina okkar.
Það er skynsamlegt að huga að sjúkratryggingum ef þú ætlar að dvelja erlendis í lengri tíma.
Gildistími ferðatrygginga, sem innihalda sjúkratryggingar, er almennt tveir til þrír mánuðir en hægt er að sækja um að framlengja gildistímann, þó innan ákveðinna takmarkana.
Ef þú stefnir að því að dvelja erlendis umfram gildistíma almennra ferðatrygginga mælum við með sjúkrakostnaðartryggingu erlendis.
Sjúkrakostnaðartrygging erlendis bætir útlagðan sjúkrakostnað, kostnað vegna sjúkraflutnings og kostnað vegna heimflutnings líkamsleifa. Þú velur bæði gildistímann og bótafjárhæðina.
Í flestum tilfellum er hægt að kaupa viðbótartryggingu ef þú ætlar að stunda áhættusamar íþróttir eða tómstundir. Hafðu samband og við skoðum málið saman.

Tryggingin greiðir
-
Sjúkrahúsvist erlendis ásamt læknishjálp, lyfjum og annarri þjónustu sem sjúkrahúsið veitir.
-
Kvalastillandi tannviðgerðir í neyðartilvikum.
-
Aukaútgjöld vegna tafarlausrar heimferðar sem læknir telur nauðsynlega.
-
Kostnað vegna flutnings á látnum ásamt aukakostnaði samferðarmanns.
Tryggingin greiðir ekki
-
Sjúkrakostnað vegna sjúkdóma sem verða á 9. mánuði meðgöngutíma, við fæðingu eða fóstureyðingu.
-
Sjúkrakostnað vegna langvinnra sjúkdóma og slysa sem tryggður hefur notið læknishjálpar við á síðastliðnum 12 mánuðum.
-
Sjúkrakostnað vegna læknismeðferðar erlendis lengur en í þrjá mánuði.
-
Sjúkrakostnað vegna líkamstjóns sem verður í keppni eða við æfingar til undirbúnings fyrir keppni í hvers konar íþróttum.
Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Skilmálar og upplýsingaskjal
Forvarnir