Hoppa yfir valmynd

Símar, snjallúr, tölvur og gleraugu

Tjón á símum, snjallúrum, tölvum og gleraugum eru með algengustu tjónum sem eru tilkynnt til okkar — því er mikilvægt að tryggja þennan mikilvæga búnað.

Í spurningasafninu okkar finnur þú svör við mörgum algengum spurningum. Hafðu samband eða kíktu í heimsókn ef þú hefur einhverjar spurningar — við aðstoðum þig með ánægju.

Tryggingar

  • Heimilistrygging inniheldur innbústryggingu. Innbústrygging tryggir síma, snjallúr, tölvur og gleraugu fyrir bruna, þjófnaði og vatnstjóni.
  • Ef heimilistryggingin þín inniheldur innbúskaskótryggingu, sem er valkvæð trygging, eru símar, snjallúr, tölvur og gleraugu líka tryggð fyrir tjóni af völdum skyndilegra og ófyrirsjáanlegra utanaðkomandi atvika.
  • Ef þú átt sérstaklega verðmæta síma, snjallúr, tölvur eða gleraugu þar sem verðmæti fer yfir bótafjárhæðir í innbúskaskó þá er best fyrir þig að hafa samband og við skoðum málið saman.
  • Ferðatrygging er valkvæð trygging í heimilistryggingu. Ferðatrygging inniheldur farangurstryggingu sem bætir tjón á farangri þínum í flutningi eða ef honum er rænt á ferðalaginu.

Gott að vita

  • Í tryggingum eru hlutir eins og símar, snjallúr, tölvur og gleraugu skilgreindir sem hluti af innbúi.
  • Símar og snjallúr afskrifast á tveimur árum og tölvur á fimm árum.
  • Í heimilistryggingu er hægt að velja um tvær mismunandi tryggingarfjárhæðir og þrjár mismunandi eigin áhættur. Tryggingarfjárhæðin sem valin er ræður því hverjar hámarksbætur eru í tjónum. Eftir því sem eigin áhættan er hærri þeim mun ódýrari er tryggingin en meiri kostnaður tryggingartaka við tjón.
  • Heimilistrygging gildir fyrir þig, maka eða sambúðarmaka og ógift börn ykkar og fósturbörn með sama lögheimili á Íslandi. Tryggingin gildir einnig fyrir börn ykkar yngri en 18 ára sem eiga annað lögheimili á Íslandi.
  • Helsti kosturinn við að vera bæði með ferðatryggingu kreditkorts og ferðatryggingu heimilistryggingar er sá að ef hámarksbótafjárhæð er náð í annarri tryggingunni þá tekur hin tryggingin við ef um er að ræða umfangsmikið tjón.
  • Við bendum viðskiptavinum okkar á að passa upp á greiðslukvittanir svo hægt sé að framvísa þeim ef tilkynna þarf tjón.

Þú getur séð yfirlit yfir tryggingarnar þínar í VÍS appinu eða með því að skrá þig inn á vefinn okkar.

Er tjónið bætt?

Ég týndi gleraugunum mínum, er tjónið bætt?
Ég missti gleraugun mín og þau brotnuðu, er tjónið bætt?
Ég missti símann minn í klósettið og hann er ónýtur, er tjónið bætt?
Skjárinn brotnaði á símanum / tölvunni, er tjónið bætt?
Síminn minn eyðilagðist, hann er eldri en 2 ára. Er tjónið bætt?
Forvarnir
Heimilið

Innbrot

Oft á tíðum er and­lega van­líðan og óör­yggið sem fylg­ir því að brot­ist er inn á heim­ilið mun verra en tjónið og mun­ir sem hverfa í inn­brot­inu. Reynsl­an hef­ur sýnt að inn­brot eru oft skipu­lögð. Þjóf­ar eru oft­ast að leita eft­ir hlut­um sem auðvelt er að koma í verð eins og mynda­vél­um, far­tölv­um, sím­um, spjald­tölv­um, flat­skjá­um, pen­ing­um og skart­grip­um.
Lesa meira