Ferðatryggingar kreditkorta Sparisjóðanna
Kreditkort Sparisjóðanna innihalda fjölbreyttar ferðatryggingar.
Ef þú ert með kreditkort frá Sparisjóðunum getur þú leitað til okkar ef þú lendir í ferðatjóni. Við sjáum um að meta tjónið og greiða þér bætur samkvæmt kortaskilmálum.
Ferðatryggingar kreditkorta Sparisjóðanna eru mismunandi eftir tegundum kreditkortanna. Þú getur kynnt þér hvaða verndir og bótafjárhæðir hvert kort inniheldur í yfirlitstöflunni hér að neðan.
- Þú þarft ekki að greiða ferð til útlanda með kortinu til að geta nýtt þér tryggingar kortsins vegna ferðatjóns erlendis.
- Þú þarft annað hvort að greiða helming ferðakostnaðar innanlands með kortinu, nýta raðgreiðslur eða bóka gistirými fyrirfram og gefa upp kortanúmer til greiðslu til að nýta tryggingar kortsins vegna ferðatjóns innanlands. Þú þarft að ganga frá kaupum og / eða bókunum áður en þú leggur af stað í ferðina frá heimili þínu.
- Kortatryggingar Sparisjóðanna gilda annað hvort í 60 daga eða 90 daga.
- Sum kreditkort Sparisjóðanna innihalda tryggingu fyrir tjóni á bílaleigubíl sem tekinn er á leigu erlendis. Nánari upplýsingar um bílaleigutryggingu kreditkorta.
- Í ákveðnum tilvikum þarftu að framvísa staðfestingu á ferðatryggingu. Það eru helst sjúkrastofnanir sem þú leitar til erlendis vegna alvarlegs slyss eða alvarlegra veikinda sem þurfa slíka staðfestingu.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.