Ferða­trygging Íslands­banka

  • Kred­it­kort Íslands­banka inni­halda fjöl­breyttar ferða­trygg­ingar. Ef þú ert með kred­it­kort frá Íslands­banka getur þú leitað til VÍS ef þú lendir í ferða­tjóni. Við sjáum um að meta tjónið og greiða þér bætur samkvæmt kortaskil­málum.

  • Korta­trygg­ingar Íslands­banka gilda annað hvort í 60 daga eða 90 daga.

  • Þú þarft ekki að greiða ferð til útlanda með kortinu til að geta nýtt þér trygg­ingar kortsins vegna ferða­tjóns erlendis.

  • Þú þarft annað hvort að greiða helming ferða­kostn­aðar innan­lands með kort­inu, nýta raðgreiðslur eða bóka gist­i­rými fyrir­fram og gefa upp korta­númer til greiðslu til að nýta trygg­ingar kortsins vegna ferða­tjóns innan­lands. Þú þarft að ganga frá kaupum og / eða bókunum áður en þú leggur af stað í ferðina frá heimili þínu.

  • Sum kred­it­kort Íslands­banka inni­halda trygg­ingu fyrir tjóni á bíla­leigubíl sem tekinn er á leigu erlendis. Bíla­leigu­trygging kred­it­korta er yfir­leitt einungis almenn kaskó­trygging og viðbótar ábyrgð­ar­trygg­ing. Bíla­leigur bjóða einnig oft upp á trygg­ingar sem inni­halda ýmis konar þjón­ustu eins og vega­hjálp og aðstoð við að fá nýjan bíl ef þú lendir í tjóni eða ef bíllinn bilar. Við mælum með að kaupa trygg­inguna hjá bíla­leig­unni þar sem hún er yfir­leitt víðtækari en sú sem er í kort­inu.

  • Ef þú lendir í tjóni á bíla­leigubíl erlendis skaltu skoða vel hvort þú sækir í trygg­ingu kred­it­kortsins þíns eða trygg­ingu bíla­leig­unnar. Korta­trygg­ingin bætir eigin áhættuna sem er í bíla­leigu­trygg­ing­unni. Kort­hafi leggur sjálfur út fyrir tjóninu og fær síðan endur­greitt við heim­komu ef tjón telst bóta­skylt.

  • Í ákveðnum tilvikum þarftu að fram­vísa stað­fest­ingu á ferða­trygg­ingu. Það eru helst sjúkra­stofn­anir sem þú leitar til erlendis vegna alvar­legs slyss eða alvar­legra veik­inda sem þurfa slíka stað­fest­ingu.

  • Vinsam­legast athugaðu að umfjöllun um trygg­inguna er ekki tæmandi. Nánari upplýs­ingar er að finna í skil­mála trygg­ing­ar­innar. Sé ósam­ræmi milli umfjöll­un­ar­innar og skil­málans þá gildir skil­mál­inn.

Tryggingin bætir

Forföll í ferð

  • Kostnað við fargjöld og gist­ingu þegar þú kemst ekki í ferð vegna tiltek­inna atvika.

Slys á ferða­lagi

  • Greiddar eru miska­bætur ef slys leiðir til varan­legs miska.

  • Greiddar eru dánar­bætur ef tryggður ferst af slys­förum.

Sjúkra­kostn­aður á ferða­lagi erlendis

  • Sjúkra­kostnað vegna veik­inda, slysa eða andláts.

Ferða­kostn­aður annarra aðila

  • Ferða- og dval­ar­kostnað ættingja eða vinar sem fylgir þér heim.

Endur­greiðsla ferðar

  • Ef rjúfa þarf ferð og fara fyrr heim vegna alvar­legra veik­inda eða slyss.

Ferð­arof

  • Nauð­synleg viðbótar­út­gjöld vegna heim­ferðar til Íslands eða dval­ar­lands ef tryggður þarf að stytta dvöl sína utan­lands vegna tiltek­inna atvika á Íslandi eða í dval­ar­landi.

Farangur og innkaup

  • Tjón á farangri vegna bruna, þjófn­aðar, innbrots, ráns, skemmd­ar­verka eða flutn­ings­slyss.

Töf á farangri

  • Greiddar bætur til kaupa á nauð­synjum ef þú færð farangur þinn ekki afhentan e ir að á áfanga­stað er komið vegna tafar eða rangrar afgreiðslu.

  • Ábyrgð­ar­trygging

Líkams- eða muna­tjón þriðja aðila er leiðir af bóta­skyldu atferli tryggðs.

---

Eftir­far­andi bóta­þættir eru eingöngu í sumum kortum:

Sjúkra­hús­dag­pen­ingar

  • Greiddir dagpen­ingar ef þú slasast eða veikist á ferða­lagi og þar að liggja inni á spítala erlendis.

Innkaupakaskó

  • Tjón vegna skyndi­legs og ófyr­ir­sjá­an­legs utan­að­kom­andi atviks á einkamunum sem greitt hefur verið fyrir með kortinu á ferða­lagi.

Ferðatöf

  • Greiddar bætur ef verk­falls­að­gerðir, óhag­stæð veður­skil­yrði eða vélar­bilun valda töfum á ferðum almenn­ings­far­ar­tækis og það leiðir til seink­unar á komu­tíma til ákvörð­un­ar­staðar.

Tafir á leið að flug­velli

  • Greiddar bætur ef þú missir af milli­landa­flugi vegna tafa á leið á flug­völl vegna tiltek­inna atvika.

Tafir vegna yfir­bók­unar

  • Greiddar bætur ef þú reynir að innrita þig í flug sem þú átt pantað en er hafnað um sæti vegna yfir­bók­unar.

Bíla­leigu­trygging

  • Kröfur vegna tjóns á bíla­leigubíl sem þú ert ábyrgur fyrir samkvæmt bíla­leigu­samn­ingi vegna tiltek­inna atvika.

Viðbótarábyrgð­ar­trygging bíla­leigu­bíls

  • Skaða­bóta­kröfu sem þú kannt að verða ábyrgur fyrir gagn­vart þriðja aðila, sem ökumaður bíla­leigu­bíls á leigu­tím­anum, að öðrum skil­yrðum skil­málans uppfylltum.

Tryggingin bætir ekki

Forföll í ferð

  • Kostnað vegna atvika sem voru fyrir hendi áður en trygg­ingin var tekin.

Slys á ferða­lagi

  • Slys sem verða vegna þátt­töku í keppni eða áhættu­sömum tómstundum.

Sjúkra­kostn­aður á ferða­lagi erlendis

  • Sjúkra­kostnað vegna veik­inda og slysa sem þú hefur notið lækn­is­hjálpar við á síðast­liðnum sex mánuðum fyrir greiðslu stað­fest­ing­ar­gjalds.

Endur­greiðsla ferðar

  • Ef ferðin varir fimm daga eða skemur.

Ferð­arof

  • Ónýttan hluta ferða­kostn­aðar né nýja ferð í stað þeirrar sem rofin var.

Farangur og innkaup

  • Tjón á hlutum sem rýrir ekki nota­gildi þeirra, né skemmdir á ferða­töskum eða hlífð­ar­töskum.

Töf á farangri

  • Vegna tafa á farangri þegar þú ert á heim­leið.

Ábyrgð­ar­trygging

  • Tjón innan samn­inga eða tjón á munum sem þú hefur að láni.

---

Eftir­far­andi bóta­þættir eru eingöngu í sumum kortum:

Sjúkra­hús­dag­pen­ingar

  • Ekki er greitt fyrir fyrir fyrstu tvo dagana sem sjúkra­hús­vistin varir.

  • Bætur greiðast ekki vegna barna yngri en 16 ára.

Innkaupakaskó

  • Tjón sem stafar af eðli­legu sliti, galla, rangri samsetn­ingu eða innri bilunum, svo sem vélrænum bilunum.

Ferðatöf

  • Bætur eru ekki greiddar ef töf stafar af því að þú hafir ákvarðað ferða­tíma í tengiflugi þrengri en lágmörk viðkom­andi flug­fé­lags/flug­vallar kveða á um og athuga­semd er gerð við bókun ferðar.

Tafir á leið að flug­velli

  • Tafir sem stafa af verk­falls­að­gerðum og vegna fyrir­mæla yfir­valda um stöðvun eða breyt­ingu á opin­berum samöngum.

Bíla­leigu­trygging

  • Tjón sem verður í akstri þar sem bannað er að aka ökutækjum eða í akst­ur­skeppnum.

  • Tjón sem verður vegna notk­unar ökutækis sem brýtur í bága við skil­mála bíla­leigu­samn­ings.

  • Vinsam­legast athugaðu að umfjöllun um trygg­inguna er ekki tæmandi. Nánari upplýs­ingar er að finna í skil­mála trygg­ing­ar­innar.

  • Sé ósam­ræmi milli umfjöll­un­ar­innar og skil­málans þá gildir skil­mál­inn.

Skil­málar og aðrar upplýs­ingar

Trygg­inga­skil­málar eru samn­ingur þinn við VÍS. Mikil­vægt er að þú kynnir þér skil­málana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en trygg­ingin er tekin.

Forvarnir

Frítími

Ferðamennska

All­ir vilja kom­ast heil­ir heim. Til að svo megi verða er góður und­ir­bún­ing­ur ferðalags mik­il­væg­ur. Hann get­ur hins veg­ar verið mjög mis­mun­andi eft­ir því hvert för­inni er heitið, hvernig er ferðast og hvernig viðrar. 

Lesa meira

Frítími

Vetrarsport

Til að stuðla að heil­brigði er reglu­leg hreyf­ing nauðsyn­leg og er úr nægu að velja. Vinsældir vetrarsports er sífellt að aukast og partur af tilverunni hjá mörgum yfir vetrartímann er að skella sér á svigskíði, gönguskíði, bretti eða skauta.

Lesa meira

Frítími

Á hjóli

Alltaf er gott og heilbrigt að skilja bílinn eftir og fara um gangandi eða nýta sér t.d. reiðhjól, hlaupahjól, bretti eða hvað annað sem í boði er.

Lesa meira

Frítími

Gróðureldar

Töluverð hætta er á gróðureldum hér á landi þar sem sina og trjágróður hefur vaxið umtalsvert síðustu ár. Þessi hætta er ekki einungis á vorin og sumrin þar sem gróðureldar geta orðið að vetri til þegar jörð er auð. Nánari upplýsingar eru á síðunni grodureldar.is

Lesa meira

Frítími

Sumarhús

Al­geng­ustu tjón í sum­ar­hús­um eru vatns­tjón. Al­gengt er að skemmd­ir verði mikl­ar þar sem oft líður nokk­ur tími frá því að lek­inn verður þar til hann upp­götv­ast. Elds­voðar eru mun sjald­gæfari en vatns­tjón­in en al­bruni er því miður ekki óþekkt fyr­ir­bæri þar sem elds­mat­ur er gíf­ur­leg­ur í sum­ar­hús­um. For­varn­ir gegn þess­um tveim­ur þátt­um þurfa því að vera of­ar­lega á for­gangslista sum­ar­húsa­eig­enda. Gott er að fara yfir sum­ar­húsið með eft­ir­far­andi gátlista til hliðsjón­ar.

Lesa meira

Frítími

Veiði

Skot- og stangveiði hef­ur í för með sér góða úti­vist, hreyf­ingu og teng­ingu við nátt­úr­una. Veiðin er þó ekki hættu­laus, sama hvort um ræðir meðhöndl­un á skot­vopn­inu sjálfu, veru út í vatni eða ferðamennsk­unni í kring­um sportið. All­ir þurfa því að huga að sínu ör­yggi og sinna sam­ferðamanna.

Lesa meira

Frítími

Hestamennska

Skráðir fé­lag­ar hjá Land­ssam­bandi hesta­manna­fé­laga eru vel yfir 12.000 í 45 fé­lög­um og ætlaður fjöldi hesta á land­inu er um 92.000. Hestaslys geta verið alvarleg og forvarnir því mjög mikilvægar.

Lesa meira

Frítími

Flugeldar

Flug­eld­ar eru ekki hættu­laus­ir og um hver ára­mót verða slys af völd­um þeirra og brun­ar þar al­geng­ast­ir. Flest­ir slasast á hönd­um en augná­verkar eru fátíðari en áður var sem má m.a. þakka notk­un hlífðargler­augna. Al­geng­asta or­sök flug­elda­slysa er vangá og/​eða van­kunn­átta, þar sem ekki er farið eft­ir leiðbein­ing­um. Flest­ir slasast um ára­mót­in sjálf en al­var­leg­ustu slys­in verða oft dag­ana á und­an eða fyrstu dag­ana á nýju ári og þá helst hjá ung­lings­strák­um sem eru að fikta með flug­elda, taka þá í sund­ur og safna púðri sam­an.

Lesa meira

Frítími

Sund

Sundmenning er mjög sterk á Íslandi og sundlaugar eru víða. Á vefnum sundlaugar.is er að finna yfirlit yfir sundlaugar landsins ásamt upplýsingum um heitar laugar en þó má ekki baða sig í þeim öllum sem þar koma fram.

Lesa meira

Aðrar trygg­ingar

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.