Afnotamissistrygging katta
Góð trygging fyrir alla sem eiga kött sem notaður er í kynbótaræktun. Ef þú ert með þessa tryggingu færðu greiddar bætur ef kötturinn tapar eiginleikum sínum til kynbótaræktunar. Bætur eru ekki greiddar fyrr en kötturinn hefur verið geldur. Afnotamissistryggingu katta getur þú einungis keypt með líftryggingu katta.
- Kauptímabil: Þegar köttur er á aldrinum 8 vikna til 5 ára.
- Tryggingarfjárhæð: Tryggingarfjárhæð afnotamissistryggingar katta er jafnhá tryggingarfjárhæð líftryggingar kattarins að frádregnum 20.000 kr. Tryggingarfjárhæðin helst óskert þar til kötturinn verður 7 ára en þá lækkar hún um 20% árlega.
- Gildistími: Þegar kötturinn verður 10 ára fellur tryggingin niður og endurnýjast ekki.
Tryggingin bætir
- Ef rækturnarköttur tapar frjósemi vegna sjúkdóms í legi, eggjastokkum, blöðruhálskirtli eða eistum.
- Ef læða verður ekki kettlingafull eftir mökun við tvo högna sem áður hafa verið frjósamir.
Tryggingin bætir ekki
- Afnotamissi vegna sjúkdóma sem voru til staðar eða slysa sem urðu áður en tryggingin tók gildi.
- Afnotamissi vegna læðu sem hefur þrisvar átt kettlinga.
- Afnotamissi eftir að köttur hefur náð sex ára aldri og aldrei eignast kettlinga.
- Afnotamissi vegna geðsjúkdóma, atferlisbrests eða skapgerðargalla.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.