Ábyrgðartrygging hunda
Góð trygging fyrir alla hundaeigendur. Tryggingin bætir kostnað sem getur fallið á þig samkvæmt skaðabótalögum ef hundur í þinni eigu veldur þriðja aðila líkams- eða munatjóni.
- Kauptímabil: Frá 8 vikna aldri hunds.
- Tryggingarfjárhæð: Tryggingarfjárhæð ábyrgðartryggingar hunda er föst fjárhæð sem kemur fram á tilboði, skírteini og endurnýjunarkvittun.
- Gildistími: Tryggingin gildir þar til henni er sagt upp.
- Eigin áhætta: Þú berð eigin áhættu af hverju tjóni sem greitt er úr ábyrgðartryggingu hunda. Upplýsingar um eigin áhættu þína koma fram á tilboði, skírteini og endurnýjunarkvittun.
- Ef hundurinn er skráður hjá sveitarfélagi getur verið að hann sé ábyrgðartryggður þar.
Tryggingin bætir
- Tjón sem fellur á þig sem eiganda hunds samkvæmt skaðabótalögum.
Tryggingin bætir ekki
- Tjón sem verður í kjölfar ákveðins verkefnis sem hundur á að sinna. Oft kallað „tjón innan samninga“.
- Tjón sem fjölskyldan þín með sama lögheimili og þú verður fyrir.
- Tjón á hlutum sem þú ert með í láni.
- Tjón sem rekja má til þess að ekki er farið eftir lögum um dýrahald.
- Tjón sem rekja má til þess að sérþjálfuðum hundi verði á mistök við að sinna hlutverki sínu.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.