Sjúkrakostnaður erlendis
Sendu okkur fyrirspurn ef þú vilt fá verð í sjúkrakostnað erlendis.
Ef þú vilt fá verð í aðrar tryggingar bendum við á netverslunina okkar.
Það er skynsamlegt að huga að sjúkratryggingum ef þú ætlar að dvelja erlendis í lengri tíma.
Gildistími ferðatrygginga, sem innihalda sjúkratryggingar, er almennt tveir til þrír mánuðir en hægt er að sækja um að framlengja gildistímann, þó innan ákveðinna takmarkana.
Ef þú stefnir að því að dvelja erlendis umfram gildistíma almennra ferðatrygginga mælum við með sjúkrakostnaði erlendis.
Sjúkrakostnaður erlendis bætir útlagðan sjúkrakostnað, kostnað vegna sjúkraflutnings og kostnað vegna heimflutnings líkamsleifa. Þú velur bæði gildistímann og bótafjárhæðina.
Einstaklingar með fyrirliggjandi sjúkdóma eða einkenni, geta sótt um trygginguna að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Í þeim tilvikum gildir tryggingin aðeins fyrir þá ferð sem tilgreind er í skírteini og tryggingarfjárhæð er föst.
Í flestum tilfellum er hægt að kaupa viðbótartryggingu ef þú ætlar að stunda áhættusamar íþróttir eða tómstundir. Hafðu samband og við skoðum málið saman.

Tryggingin greiðir
-
Nauðsynlegan kostnað vegna læknis- og sérfræðiaðstoðar, sjúkrahúsvistar, hjúkrunar, lyfja, meðferðar og bráðrar tannlæknaþjónustu.
-
Kostnað vegna nauðsynlegra aðgerða sem ekki geta beðið þar til tryggður kemur til Íslands, enda séu þær samþykktar af SOS International eða VÍS.
-
Kostnað vegna sjúkraflutnings, nauðsynlegrar aukadvalar og heimferðar, í samráði við SOS International eða VÍS.
-
Kostnað við flutning hins látna til Íslands og, við tilteknar aðstæður, nauðsynlegan ferða- og dvalarkostnað aðstandanda eða samferðarmanns.
Tryggingin greiðir ekki
-
Kostnað vegna fyrirliggjandi sjúkdóma, veikinda eða einkenna sem tryggður hefur fengið læknishjálp eða meðferð við síðustu 12 mánuði, nema sérstaklega hafi verið samið um það og það sé tilgreint í skírteini.
-
Meðferð eða eftirmeðferð á Íslandi, valkvæðar læknis- eða fegrunarmeðferðir erlendis og tjón vegna ferðalaga sem farin eru gegn ráðleggingum læknis.
-
Slys við tilteknar áhættusamar athafnir, svo sem keppnisíþróttir, akstursíþróttir, bardagaíþróttir, fjallgöngur yfir 4.000 metra hæð, tilteknar köfunar- og flugíþróttir og teygjustökk.
-
Tjón sem rekja má til áfengis- eða fíkniefnaneyslu, refsiverðra athafna, náttúruhamfara eða annarra atvika sem nánar eru tilgreind í skilmálum.
Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Forvarnir