
Ferðatrygging Léttkort · Síminn Pay
Nánari upplýsingar
- Þú kaupir ferðatryggingu Léttkortsins í Síminn Pay appinu.
- Þú þarft ekki að greiða ferð til útlanda með kortinu til að geta nýtt þér tryggingar kortsins vegna ferðatjóns erlendis.
- Þú þarft annað hvort að greiða helming ferðakostnaðar innanlands með kortinu, nýta raðgreiðslur eða bóka gistirými fyrirfram og gefa upp kortanúmer til greiðslu til að nýta tryggingar kortsins vegna ferðatjóns innanlands. Þú þarft að ganga frá kaupum og / eða bókunum áður en þú leggur af stað í ferðina frá heimili þínu.
- Ferðatryggingar kortsins gilda í allt að 60 daga.

Staðfesting ferðatryggingar
Í ákveðnum tilvikum þarftu að staðfesta við þriðja aðila að þú sért með ferðatryggingar. Það eru helst sjúkrastofnanir sem þú leitar til erlendis vegna alvarlegs slyss eða alvarlegra veikinda sem þurfa slíka staðfestingu.
Sendiráð, ferðaþjónustuaðilar og aðrir sem skipuleggja hópferðir geta einnig óskað eftir því að fá ferðatryggingar þínar staðfestar áður en ferðalag hefst.

Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.