Ferða­trygging Símans Pay

  • Síminn Pay býður upp á tvær tegundir korta Létt­kort og fyrir­tækja­kort. Í Létt­korti er hægt að kaupa ferða­trygg­ingu áður en kort­hafi fer í ferð. Í fyrir­tækja­korti er hægt að velja kort með eða án ferða­trygg­inga.

  • Ef þú ert með ferða­trygg­ingu í korti frá Símanum Pay getur þú leitað til okkar ef þú lendir í ferða­tjóni. Við sjáum um að meta tjónið og greiða þér bætur samkvæmt skil­málum trygg­ing­anna.

  • Ferða­trygg­ingar kort­anna gilda í allt að 60 daga.

  • Þú þarft ekki að greiða ferð til útlanda með kortinu til að geta nýtt þér trygg­ingar kortsins vegna ferða­tjóns erlendis.

  • Þú þarft annað hvort að greiða helming ferða­kostn­aðar innan­lands með kort­inu, nýta raðgreiðslur eða bóka gist­i­rými fyrir­fram og gefa upp korta­númer til greiðslu til að nýta trygg­ingar kortsins vegna ferða­tjóns innan­lands. Þú þarft að ganga frá kaupum og / eða bókunum áður en þú leggur af stað í ferðina frá heimili þínu.

  • Í ákveðnum tilvikum þarftu að fram­vísa stað­fest­ingu á ferða­trygg­ingu. Það eru helst sjúkra­stofn­anir sem þú leitar til erlendis vegna alvar­legs slyss eða alvar­legra veik­inda sem þurfa slíka stað­fest­ingu.

Tryggingin bætir

Forföll í ferð

  • Kostnað við fargjöld og gist­ingu þegar þú kemst ekki í ferð vegna tiltek­inna atvika.

Slys á ferða­lagi

Ef þau sem eru tryggð slasast á ferða­lagi eru greiddar:

  • Örorku­bætur ef slys leiðir til örorku.

  • Dánar­bætur ef slys leiðir til dauða.

Sjúkra­kostn­aður á ferða­lagi erlendis

Ef þau sem eru tryggð veikj­ast, slasast eða láta lífið á ferða­lagi erlendis bætir trygg­ingin:

  • Læknis- og sérfræði­kostnað, sjúkra­hús­vist, hjúkrun, lyfja­kostnað og meðferð samkvæmt lækn­is­vott­orði viðkom­andi sjúkra­stofn­unar.

  • Sjúkra­flutning í því landi sem slys eða veik­indi verða og nauð­syn­legan auka­dval­ar­kostnað og heim­ferð­ar­kostnað í samráði við SOS Internati­onal.

  • Kostnað við nauð­syn­lega tann­lækna­þjón­ustu vegna sann­an­legs slyss eða til þess að lina þján­ingar.

  • Flutning jarð­neskra leifa tryggðs til Íslands eða dval­ar­lands.

Ferða­kostn­aður annarra aðila

  • Ferða- og dval­ar­kostnað ættingja eða vinar sem fylgir þér heim.

Endur­greiðsla ferðar

  • Ef rjúfa þarf ferð og fara fyrr heim vegna alvar­legra veik­inda eða slyss.

Ferð­arof

  • Nauð­synleg viðbótar­út­gjöld vegna heim­ferðar til Íslands eða dval­ar­lands ef tryggður þarf að stytta dvöl sína utan­lands vegna tiltek­inna atvika á Íslandi eða í dval­ar­landi.

Farang­urs- og innkaupa­trygging

  • Tjón á farangri vegna bruna, þjófn­aðar, innbrots, ráns, skemmd­ar­verka eða flutn­ings­slyss.

Töf á farangri

  • Kostnað vegna kaupa á nauð­synjum ef innrit­aður farangur fæst ekki afhentur innan 8 klukku­stunda.

Ábyrgð­ar­trygging

  • Líkams- eða muna­tjón þriðja aðila er leiðir af bóta­skyldu atferli tryggðs.

Tryggingin bætir ekki

Forföll í ferð

  • Kostnað vegna atvika sem voru fyrir hendi áður en trygging var tekin.

Slys á ferða­lagi

  • Slys vegna þátt­töku í keppni eða æfingum til undir­bún­ings fyrir keppni í hvers kyns íþróttum.

  • Slys sem verða vegna þátt­töku í keppni eða áhættu­sömum tómstundum.

Sjúkra­kostn­aður á ferða­lagi erlendis

  • Kostnað vegna hvers kyns slysa, veik­inda og sjúk­dóma, sem tryggður hefur þjáðst af og hefur notið lækn­is­hjálpar eða meðferðar við, á síðustu 6 mánuðum fyrir greiðslu stað­fest­ing­ar­gjalds.

  • Sjúkra­kostnað vegna veik­inda og slysa sem þú hefur notið lækn­is­hjálpar við á síðast­liðnum 6 mánuðum fyrir greiðslu stað­fest­ing­ar­gjalds.

  • Sjúkra­kostnað vegna þátt­töku í keppni eða áhættu­sömum tómstundum.

Endur­greiðsla ferðar

  • Ef ferðin varir 5 daga eða skemur.

Ferð­arof

  • Ónýttan hluta ferða­kostn­aðar né nýja utan­ferð í stað þeirrar sem rofin var.

Farang­urs- og innkaupa­trygging

  • Tjón á hlutum sem rýrir ekki nota­gildi þeirra, né skemmdir á ferða­töskum eða hlífð­ar­töskum.

  • Tjón er verður vegna þjófn­aðar eða innbrots sem tryggður hefur ekki tilkynnt lögreglu innan sólar­hrings frá því að það varð eða skýrt var frá því.

Töf á farangri

  • Vegna tafa á farangri þegar tryggður er á heim­leið.

  • Ef töfin stafar af því að tryggður hafi ákvarðað ferða­tíma í tengiflugi þrengri en lágmörk viðkom­andi flug­fé­lags/flug­vallar kveða á um og athuga­semd er gerð við farbókun.

Ábyrgð­ar­trygging

  • Hvers kyns skemmd­ar­verk, sem unnin eru af ásetn­ingi.

  • Vinsam­legast athugaðu að umfjöllun um trygg­inguna er ekki tæmandi. Nánari upplýs­ingar er að finna í skil­mála trygg­ing­ar­innar.

  • Sé ósam­ræmi milli umfjöll­un­ar­innar og skil­málans þá gildir skil­mál­inn.

Skil­málar og aðrar upplýs­ingar

Trygg­inga­skil­málar eru samn­ingur þinn við VÍS. Mikil­vægt er að þú kynnir þér skil­málana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en trygg­ingin er tekin.

Í upplýs­inga­skjali er að finna stutta saman­tekt á helstu þáttum trygg­ing­ar­innar. Upplýs­inga­skjöl eru stöðluð skjöl sem öllum trygg­inga­fé­lögum ber að birta og auðveldar þannig viðskipta­vinum trygg­inga­fé­lag­anna að bera saman trygg­ingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Forvarnir

Frítími

Ferðamennska

All­ir vilja kom­ast heil­ir heim. Til að svo megi verða er góður und­ir­bún­ing­ur ferðalags mik­il­væg­ur. Hann get­ur hins veg­ar verið mjög mis­mun­andi eft­ir því hvert för­inni er heitið, hvernig er ferðast og hvernig viðrar. 

Lesa meira

Frítími

Vetrarsport

Til að stuðla að heil­brigði er reglu­leg hreyf­ing nauðsyn­leg og er úr nægu að velja. Vinsældir vetrarsports er sífellt að aukast og partur af tilverunni hjá mörgum yfir vetrartímann er að skella sér á svigskíði, gönguskíði, bretti eða skauta.

Lesa meira

Frítími

Á hjóli

Alltaf er gott og heilbrigt að skilja bílinn eftir og fara um gangandi eða nýta sér t.d. reiðhjól, hlaupahjól, bretti eða hvað annað sem í boði er.

Lesa meira

Frítími

Gróðureldar

Töluverð hætta er á gróðureldum hér á landi þar sem sina og trjágróður hefur vaxið umtalsvert síðustu ár. Þessi hætta er ekki einungis á vorin og sumrin þar sem gróðureldar geta orðið að vetri til þegar jörð er auð. Nánari upplýsingar eru á síðunni grodureldar.is

Lesa meira

Frítími

Sumarhús

Al­geng­ustu tjón í sum­ar­hús­um eru vatns­tjón. Al­gengt er að skemmd­ir verði mikl­ar þar sem oft líður nokk­ur tími frá því að lek­inn verður þar til hann upp­götv­ast. Elds­voðar eru mun sjald­gæfari en vatns­tjón­in en al­bruni er því miður ekki óþekkt fyr­ir­bæri þar sem elds­mat­ur er gíf­ur­leg­ur í sum­ar­hús­um. For­varn­ir gegn þess­um tveim­ur þátt­um þurfa því að vera of­ar­lega á for­gangslista sum­ar­húsa­eig­enda. Gott er að fara yfir sum­ar­húsið með eft­ir­far­andi gátlista til hliðsjón­ar.

Lesa meira

Frítími

Veiði

Skot- og stangveiði hef­ur í för með sér góða úti­vist, hreyf­ingu og teng­ingu við nátt­úr­una. Veiðin er þó ekki hættu­laus, sama hvort um ræðir meðhöndl­un á skot­vopn­inu sjálfu, veru út í vatni eða ferðamennsk­unni í kring­um sportið. All­ir þurfa því að huga að sínu ör­yggi og sinna sam­ferðamanna.

Lesa meira

Frítími

Hestamennska

Skráðir fé­lag­ar hjá Land­ssam­bandi hesta­manna­fé­laga eru vel yfir 12.000 í 45 fé­lög­um og ætlaður fjöldi hesta á land­inu er um 92.000. Hestaslys geta verið alvarleg og forvarnir því mjög mikilvægar.

Lesa meira

Frítími

Flugeldar

Flug­eld­ar eru ekki hættu­laus­ir og um hver ára­mót verða slys af völd­um þeirra og brun­ar þar al­geng­ast­ir. Flest­ir slasast á hönd­um en augná­verkar eru fátíðari en áður var sem má m.a. þakka notk­un hlífðargler­augna. Al­geng­asta or­sök flug­elda­slysa er vangá og/​eða van­kunn­átta, þar sem ekki er farið eft­ir leiðbein­ing­um. Flest­ir slasast um ára­mót­in sjálf en al­var­leg­ustu slys­in verða oft dag­ana á und­an eða fyrstu dag­ana á nýju ári og þá helst hjá ung­lings­strák­um sem eru að fikta með flug­elda, taka þá í sund­ur og safna púðri sam­an.

Lesa meira

Frítími

Sund

Sundmenning er mjög sterk á Íslandi og sundlaugar eru víða. Á vefnum sundlaugar.is er að finna yfirlit yfir sundlaugar landsins ásamt upplýsingum um heitar laugar en þó má ekki baða sig í þeim öllum sem þar koma fram.

Lesa meira

Aðrar trygg­ingar

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.