Líftrygging

Af hverju á ég að líftryggja mig?

Líftrygging tryggir þínum nánustu fjár­hags­legt öryggi ef hið óvænta gerist. Við viljum vera traust bakland í óvissu lífsins og bjóðum upp á frábæra líftrygg­ingu.

Fjárhæð trygg­ingar er greidd út ef þú fellur frá á trygg­ing­ar­tím­anum. Engu máli skiptir hvort orsökin er slys eða sjúk­dómur.

Notaðu reikni­vélina okkar og sjáðu hvað líftrygging gæti kostað.

  • Ef þú hefur fyrir öðrum að sjá og ert með fjár­hags­legar skuld­bind­ingar er skyn­sam­legt að kaupa líftrygg­ingu. Þú ákveður trygg­ing­ar­fjár­hæðina og hver rétt­hafi hennar er ef þú fellur frá.

  • Líftrygg­ing­ar­bætur eru greiddar út í einu lagi og eru þær skatt­frjálsar og verð­tryggðar. Það er mikil­vægt að fjár­hæðin endur­spegli skuld­bind­ingar og fjöl­skyldu­hagi þína, en ef breyt­ingar verða getur það kallað á endur­skoðun trygg­ingar.

  • Þú getur sótt um líftrygg­ingu ef þú ert á aldr­inum 18 til 62 ára og gildir hún til 75 ára aldurs. Frá 55 ára aldri lækkar líftrygg­ing­ar­fjár­hæðin um ákveðið hlut­fall árlega en verðið stendur í stað.

  • Börn þín eru sjálf­krafa líftryggð í gegnum líftrygg­inguna þína frá fæðingu til 18 ára aldurs. Fjárhæð bóta er tvær millj­ónir króna fyrir hvert barn.

  • Ef þú eignast barn getur þú hækkað fjárhæð líftrygg­ingar þinnar um allt að 25% eða að hámarki 5 millj­ónir króna án þess að fara í sérstakt heilsu­fars­mat.

Hvað bætir tryggingin

  • Greiddar bætur til rétt­hafa vegna andláts tryggðs.

  • Greiddar bætur til foreldris ef lifandi fætt barn yngra en 18 ára fellur frá.

Hvað bætir tryggingin ekki

  • Ef tryggður sviptir sig lífi innan eins árs frá því að trygg­ingin tók gildi.

  • Ef andlát barns má rekja beint eða óbeint til ástands barnsins fyrir gildis­töku trygg­ing­ar­innar.

  • Vinsam­legast athugaðu að umfjöllun um trygg­inguna á við um nýjasta skil­málann og er ekki tæmandi. Nánari upplýs­ingar er að finna í skil­mála trygg­ing­ar­innar.

  • Sé ósam­ræmi milli umfjöll­un­ar­innar og skil­málans þá gildir skil­mál­inn.

Skil­málar og aðrar upplýs­ingar

Trygg­inga­skil­málar eru samn­ingur þinn við VÍS. Mikil­vægt er að þú kynnir þér skil­málana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en trygg­ingin er tekin.

Í upplýs­inga­skjali er að finna stutta saman­tekt á helstu þáttum trygg­ing­ar­innar. Upplýs­inga­skjöl eru stöðluð skjöl sem öllum trygg­inga­fé­lögum ber að birta og auðveldar þannig viðskipta­vinum trygg­inga­fé­lag­anna að bera saman trygg­ingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Forvarnir

Heilsa

Hreyfing

Hreyf­ing er öll­um nauðsyn­leg og ætti eng­inn að van­meta mik­il­vægi henn­ar. Hreyfing hjálpar til að stuðla að bæði andlegu og líkamlegu heilbrigði. Í bæk­lingi Land­læknisembætt­is­ins Ráðlegg­ing­ar um hreyf­ingu eru grein­argóðar upp­lýs­ing­ar um hreyf­ingu. 

Lesa meira

Heilsa

Andleg heilsa

Andleg heilsa er ekki síður mikilvæg en líkamleg. Hún er þó ekki sjálfgefin frekar en líkamleg heilsa. Til einföldunar má ef til vill segja að þeir sem geta stundað sína vinnu, verið virkir þjóðfélagsþegnar, séð um sig sjálfir, lagað sig að aðstæðum og verið virkir í félagslegum samskiptum séu andlega heilir.

Lesa meira

Heilsa

Svefn og hvíld

Reglu­leg­ur svefn og hvíld er okkur lífs­nauðsyn­leg. Þótt hægt sé að stofna til skamm­tíma­skuld­ar í þess­um efn­um geng­ur það ekki til lengd­ar. At­hygl­in skerðist, lífs­gæði versna, þol­in­mæði minnk­ar, slysa­hætta eykst og and­leg líðan versn­ar svo eitt­hvað sé nefnt. En fólk þarf mis­mik­inn svefn. Börn á grunn­skóla­aldri þurfa alla jafna átta til ell­efu tíma svefn en full­orðnir sjö til níu klukku­stund­ir og stytt­ist gjarn­an eft­ir því sem fólk eld­ist.

Lesa meira

Heilsa

Mataræði

Hollt, fjölbreytt og gott mataræði er öllum nauðsynlegt. Það stuðlar að vellíðan og dregur úr ýmsum heilsukvillum.

Lesa meira

Heilsa

Vímuefni

Ákjós­an­leg­ast væri að notk­un á tób­aki, áfengi og öðrum vímu­efn­um væri ekki til staðar. Þjóðfé­lags­leg­ur kostnaður vegna vímuefna er gríðarleg­ur og af­leiðing­ar ofnotk­un­ar eru oft al­var­leg­ar og þá ekki ein­göngu fyr­ir þá sem neyta þeirra held­ur einnig þeim sem standa neytendunum nærri. Góðar upp­lýs­ing­ar um notk­un áfeng­is, kanna­bis­efna, örv­andi efna, of­skynj­un­ar­efna, sprautufíkn, stera, sveppi og fleira er að finna á heimasíðu SÁÁ. 

Lesa meira

Ef þú ert með líf- og heilsu­trygg­ingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftir­far­andi trygg­ingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.