Hestatrygging
Hvort sem hesturinn er nýttur til útreiða, í keppni eða til ræktunar þá er mikilvægt að tryggja hestinn. Í hestatryggingu eru fimm valkvæðir bótaþættir; sjúkrakostnaður, líftrygging, takmörkuð líftrygging, afnotamissir og ábyrgðartrygging. Hægt er að setja trygginguna saman eftir þörfum hvers og eins.
Val á tryggingafjárhæð miðast við kaupverð eða mat útfrá dómum sem hesturinn hefur hlotið.
Kaupandi tryggingar verður að vera eigandi hestsins.
Hægt er að kaupa hestatryggingu ef hesturinn er ekki eldri en 15 vetra, þó er hægt að kaupa ábyrgðartryggingu óháð aldri hestsins.
Flestir bótaþættir hestatryggingar falla niður við 20 vetra aldur hestsins.

Tryggingin bætir
Sjúkrakostnaður
-
Lækniskostnað vegna skoðunar og meðferðar hestsins vegna sjúkdóms eða slyss.
Líftrygging
-
Ef hestur deyr af völdum sjúkdóms eða slyss.
-
Ef hestur er svo sjúkur eða slasaður að aflífun er ráðlögð af dýralækni.
-
Ef hestur hverfur og finnst ekki aftur innan fjögurra mánaða.
Takmörkuð líftrygging
-
Ef hestur er svo sjúkur eða slasaður að tafarlaus aflífun er ráðlögð af dýralækni.
-
Ef hestur hverfur og finnst ekki aftur innan fjögurra mánaða.
Afnotamissir
-
Ef hestur er úrskurðaður ónothæfur til þeirrar notkunar sem tilgreind er í skírteini í kjölfar sjúkdóms eða slyss og hefur tapað til frambúðar eiginleikum til umræddrar notkunar eru greiddar bætur.
Ábyrgðartrygging
-
Beint líkams- eða munatjón þriðja aðila vegna skaðabótaábyrgðar tryggðs sem fellur á hann sem eiganda hests samkvæmt íslenskum lögum.
Tryggingin bætir ekki
Sjúkrakostnaður
-
Lækniskostnað vegna sjúkdóms sem hesturinn fær innan 20 daga frá gildistöku tryggingarinnar eða vegna sjúkdóms eða slyss sem átti sér upphaf fyrir þann tíma sem tryggingin tók gildi.
-
Lækniskostnað vegna fyrirbyggjandi aðgerða og reglulegra skoðana.
-
Kostnað vegna sjúkraþjálfunar og endurhæfingar eða vegna fóðurs, fæðubótarefna og annarra sambærilegra vara.
Líftrygging
-
Ef hestur deyr af völdum sjúkdóms sem hann fær innan 20 daga frá gildistöku tryggingarinnar eða vegna sjúkdóms eða slyss sem átti sér upphaf fyrir þann tíma sem tryggingin tók gildi.
-
Ef hestur er aflífaður vegna geðsjúkdóma, atferlisbrests, skapgerðargalla eða annarra geðrænna einkenna.
Takmörkuð líftrygging
-
Ef hestur deyr af völdum sjúkdóms sem hann fær innan 20 daga frá gildistöku tryggingarinnar eða vegna sjúkdóms eða slyss sem átti sér upphaf fyrir þann tíma sem tryggingin tók gildi.
-
Ef hestur er aflífaður vegna geðsjúkdóma, atferlisbrests, skapgerðargalla eða annarra geðrænna einkenna.
Afnotamissir
-
Ef hestur er úrskurðaður ónothæfur vegna sjúkdóms sem hann fær innan 20 daga frá gildistöku tryggingarinnar eða vegna sjúkdóms eða slyss sem átti sér upphaf fyrir þann tíma sem tryggingin tók gildi.
-
Ef hestur er úrskurðaður ónothæfur vegna geðsjúkdóma, atferlisbrests, skapgerðargalla eða annarra geðrænna einkenna.
Ábyrgðartrygging
-
Tjón sem fjölskylda þín verður fyrir eða umsjónaraðili hestsins.
-
Tjón á hlutum sem þú ert með í láni.
Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Skilmálar og upplýsingaskjal
Forvarnir












