Sjúkra­kostn­að­ar­trygging innan­lands

Ertu að flytja til Íslands?Hvort sem þú ert að flytja lögheimili þitt til landsins eða koma tímabundið vegna vinnu eða náms þá verndar sjúkrakostnaðartrygging innanlands þig í sex mánuði áður en þú nýtur verndar Sjúkratrygginga Íslands.
  • Sjúkra­kostn­að­ar­trygging innlands er skamm­tíma­trygg­ing. Trygg­ingin gildir í sex mánuði og tekur gildi þegar tryggður hefur fengið útgefið dval­ar­leyfi eða er íslenskur ríkis­borgari sem hefur skráð lögheimili sitt á Íslandi.

  • Ef þú flytur til Íslands frá öðru landi innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins, Græn­landi eða Færeyjum kann að vera að þú eigir rétt á sjúkra­trygg­ingu frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands án sex mánaða biðtíma.

  • Trygg­ingin er skyldu­trygging fyrir útlend­inga sem eru að koma tíma­bundið til Íslands vegna vinnu eða náms og hafa sótt um dvalar- eða atvinnu­leyfi frá Útlend­inga­stofnun.

  • Ef eitt­hvað kemur upp á og sækja þarf um bætur úr trygg­ing­unni, þarf tryggður að leggja fram stað­fest­ingu frá Útlend­inga­stofnun um að dval­ar­leyfi sé í gildi á tjóns­degi.

  • Eigin áhætta er 50.000 kr. vegna saman­lagðs kostn­aðar sem fellur undir trygg­ing­una.

Tryggingin bætir

  • Kostnað við sjúkra­hús­vist að ráði læknis og kostnað vegna almennrar og sérhæfðar þjón­ustu sem veitt er á sjúkra­húsum, án þess að um innlögn á sjúkrahús sé að ræða, þó ekki á heilsu­hælum nema vegna afleið­inga sjúk­dóms sem fyrst sýndi einkenni eftir að trygg­ingin tók gildi eða slyss sem varð á trygg­ing­ar­tíma­bil­inu.

  • Kostnað við almenna lækn­is­hjálp utan sjúkra­húsa.

  • Kostnað við nauð­syn­legar rann­sóknir og meðferð hjá sérgreina­lækn­um. 

  • Kostnað við lyf sem tryggðum er lífs­nauð­syn­legt að nota að stað­aldri, auk annars nauð­syn­legs lyfja­kostn­aðar.

  • Kostnað vegna óhjá­kvæmi­legs ferða­kostn­aðar læknis til tryggðs og flutn­ings­kostn­aðar tryggðs á sjúkra­hús.

  • Kostnað vegna hjúkr­unar í heima­húsum vegna alvar­legra og lang­vinnra sjúk­dóma eða slysa sem eru innan bóta­sviðs trygg­ing­ar­innar enda komi heima­lega í stað sjúkra­hús­vistar.

Tryggingin bætir ekki

  • Kostnað vegna bólu­setn­inga.

  • Kostnað vegna dvalar á fæðing­ar­stofn­unum.

  • Kostnað sem tryggður á rétt á úr opin­berum sjúkra­trygg­ingum á Íslandi eða erlendis.

  • Kostnað vegna slyss sem hefur orðið áður en trygging tók gildi.

  • Kostnað vegna sjúk­dóms sem fyrst hafði sýnt einkenni áður en trygg­ingin tók gildi.

  • Kostnað vegna tann­lækn­inga eða lýta­lækn­inga, nema um sé að ræða nauð­syn­legar bráða­að­gerðir vegna bóta­skylds slyss eða sjúk­dóms.

  • Kostnað vegna meðgöngu, fæðing­ar­hjálpar eða sjúk­dóma sem rekja má til meðgöngu eða fóst­ur­láts.

  • Kostnað vegna sjúk­dóms sem rót á að rekja til neyslu áfengis og ávana- og fíkni­efna.

  • Kostnað vegna slysa í áhættu­sömum íþrótta­greinum.

  • Kostnað vegna slysa sem verða í rysk­ingum eða þátt­töku í refsi­verðum verkn­aði.

  • Kostnað vegna slysa sem beint eða óbeint hljótast af eða eru af völdum jarð­skjálfta, eldgoss, skriðu­falls, snjóflóðs eða annarra nátt­úru­ham­fara.

  • Vinsam­legast athugaðu að umfjöllun um trygg­inguna er ekki tæmandi. Nánari upplýs­ingar er að finna í skil­mála trygg­ing­ar­innar.

  • Sé ósam­ræmi milli umfjöll­un­ar­innar og skil­málans þá gildir skil­mál­inn.

Skil­málar og aðrar upplýs­ingar

Trygg­inga­skil­málar eru samn­ingur þinn við VÍS. Mikil­vægt er að þú kynnir þér skil­málana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en trygg­ingin er tekin.

Í upplýs­inga­skjali er að finna stutta saman­tekt á helstu þáttum trygg­ing­ar­innar. Upplýs­inga­skjöl eru stöðluð skjöl sem öllum trygg­inga­fé­lögum ber að birta og auðveldar þannig viðskipta­vinum trygg­inga­fé­lag­anna að bera saman trygg­ingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Forvarnir

Heilsa

Hreyfing

Hreyf­ing er öll­um nauðsyn­leg og ætti eng­inn að van­meta mik­il­vægi henn­ar. Hreyfing hjálpar til að stuðla að bæði andlegu og líkamlegu heilbrigði. Í bæk­lingi Land­læknisembætt­is­ins Ráðlegg­ing­ar um hreyf­ingu eru grein­argóðar upp­lýs­ing­ar um hreyf­ingu. 

Lesa meira

Heilsa

Andleg heilsa

Andleg heilsa er ekki síður mikilvæg en líkamleg. Hún er þó ekki sjálfgefin frekar en líkamleg heilsa. Til einföldunar má ef til vill segja að þeir sem geta stundað sína vinnu, verið virkir þjóðfélagsþegnar, séð um sig sjálfir, lagað sig að aðstæðum og verið virkir í félagslegum samskiptum séu andlega heilir.

Lesa meira

Heilsa

Svefn og hvíld

Reglu­leg­ur svefn og hvíld er okkur lífs­nauðsyn­leg. Þótt hægt sé að stofna til skamm­tíma­skuld­ar í þess­um efn­um geng­ur það ekki til lengd­ar. At­hygl­in skerðist, lífs­gæði versna, þol­in­mæði minnk­ar, slysa­hætta eykst og and­leg líðan versn­ar svo eitt­hvað sé nefnt. En fólk þarf mis­mik­inn svefn. Börn á grunn­skóla­aldri þurfa alla jafna átta til ell­efu tíma svefn en full­orðnir sjö til níu klukku­stund­ir og stytt­ist gjarn­an eft­ir því sem fólk eld­ist.

Lesa meira

Heilsa

Mataræði

Hollt, fjölbreytt og gott mataræði er öllum nauðsynlegt. Það stuðlar að vellíðan og dregur úr ýmsum heilsukvillum.

Lesa meira

Heilsa

Vímuefni

Ákjós­an­leg­ast væri að notk­un á tób­aki, áfengi og öðrum vímu­efn­um væri ekki til staðar. Þjóðfé­lags­leg­ur kostnaður vegna vímuefna er gríðarleg­ur og af­leiðing­ar ofnotk­un­ar eru oft al­var­leg­ar og þá ekki ein­göngu fyr­ir þá sem neyta þeirra held­ur einnig þeim sem standa neytendunum nærri. Góðar upp­lýs­ing­ar um notk­un áfeng­is, kanna­bis­efna, örv­andi efna, of­skynj­un­ar­efna, sprautufíkn, stera, sveppi og fleira er að finna á heimasíðu SÁÁ. 

Lesa meira

Aðrar trygg­ingar

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.