Ábyrgð­ar­trygging einstak­linga

Samkvæmt íslenskum lögum berð þú skaða­bóta­ábyrgð ef þú veldur öðrum líkams- eða muna­tjóni með saknæmum og ólög­mætum hætti.

  • Úr ábyrgð­ar­trygg­ingu greiðast skaða­bætur til tjón­þola þíns ef skaða­bóta­skylda fellur á þig.

  • Úr trygg­ing­unni færð þú einnig bætur vegna kostn­aðar sem getur fallið á þig ef skaða­bótakrafa er gerð á hendur þér.

  • Þar sem skaða­bóta­ábyrgð er oft flókið lögfræði­legt úrlausn­ar­efni ráðleggjum við þér að leita samráðs við okkur um rétt­ar­stöðu þína ef krafist er skaða­bóta af þér vegna tjóns sem talið er að þú eigir sök á. Við bendum þér sérstak­lega á að viður­kenna ekki skaða­bóta­skyldu án samráðs við okkur.

  • Ábyrgðartrygg­ing nær einnig til tjóna vegna léttra bif­hjóla í flokki I og reið­hjóla sem eru ekki trygg­ing­ar­skyld sam­kvæmt um­ferðarlög­um.

Tryggingin bætir

  • Kostnað sem þér ber að greiða ef skaða­bóta­skylda fellur á þig samkvæmt skaða­bóta­lögum.

  • Kostnað sem þér ber að greiða ef skaða­bóta­skylda fellur á þig vegna atviks sem varð vegna þess að þú varst ökumaður létts bifhjóls í flokki I.

Tryggingin bætir ekki

  • Tjón sem verður í kjölfar ákveðins verk­efnis sem þú ert fenginn til að sinna. Oft kallað „tjón innan samn­ings“.

  • Kostnað vegna tjóns sem þeir aðilar sem trygg­ingin nær yfir valda hvor öðrum.

  • Kostnað vegna tjóns sem þú veldur í vinnu.

  • Kostnað vegna tjóns á hlutum sem þú hefur fengið lánaða.

  • Kostnað vegna tjóns sem þú veldur sem eigandi eða notandi farar­tækja, skot­vopna eða dýra.

  • Þann hluta tjónsins sem fellur undir eigin áhættu.

  • Vinsam­legast athugaðu að umfjöllun um trygg­inguna er ekki tæmandi. Nánari upplýs­ingar er að finna í skil­mála trygg­ing­ar­innar.

  • Sé ósam­ræmi milli umfjöll­un­ar­innar og skil­málans þá gildir skil­mál­inn.

Skil­málar og aðrar upplýs­ingar

Trygg­inga­skil­málar eru samn­ingur þinn við VÍS. Mikil­vægt er að þú kynnir þér skil­málana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en trygg­ingin er tekin.

Í upplýs­inga­skjali er að finna stutta saman­tekt á helstu þáttum trygg­ing­ar­innar. Upplýs­inga­skjöl eru stöðluð skjöl sem öllum trygg­inga­fé­lögum ber að birta og auðveldar þannig viðskipta­vinum trygg­inga­fé­lag­anna að bera saman trygg­ingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Forvarnir

Heilsa

Hreyfing

Hreyf­ing er öll­um nauðsyn­leg og ætti eng­inn að van­meta mik­il­vægi henn­ar. Hreyfing hjálpar til að stuðla að bæði andlegu og líkamlegu heilbrigði. Í bæk­lingi Land­læknisembætt­is­ins Ráðlegg­ing­ar um hreyf­ingu eru grein­argóðar upp­lýs­ing­ar um hreyf­ingu. 

Lesa meira

Heilsa

Andleg heilsa

Andleg heilsa er ekki síður mikilvæg en líkamleg. Hún er þó ekki sjálfgefin frekar en líkamleg heilsa. Til einföldunar má ef til vill segja að þeir sem geta stundað sína vinnu, verið virkir þjóðfélagsþegnar, séð um sig sjálfir, lagað sig að aðstæðum og verið virkir í félagslegum samskiptum séu andlega heilir.

Lesa meira

Heilsa

Svefn og hvíld

Reglu­leg­ur svefn og hvíld er okkur lífs­nauðsyn­leg. Þótt hægt sé að stofna til skamm­tíma­skuld­ar í þess­um efn­um geng­ur það ekki til lengd­ar. At­hygl­in skerðist, lífs­gæði versna, þol­in­mæði minnk­ar, slysa­hætta eykst og and­leg líðan versn­ar svo eitt­hvað sé nefnt. En fólk þarf mis­mik­inn svefn. Börn á grunn­skóla­aldri þurfa alla jafna átta til ell­efu tíma svefn en full­orðnir sjö til níu klukku­stund­ir og stytt­ist gjarn­an eft­ir því sem fólk eld­ist.

Lesa meira

Heilsa

Mataræði

Hollt, fjölbreytt og gott mataræði er öllum nauðsynlegt. Það stuðlar að vellíðan og dregur úr ýmsum heilsukvillum.

Lesa meira

Heilsa

Vímuefni

Ákjós­an­leg­ast væri að notk­un á tób­aki, áfengi og öðrum vímu­efn­um væri ekki til staðar. Þjóðfé­lags­leg­ur kostnaður vegna vímuefna er gríðarleg­ur og af­leiðing­ar ofnotk­un­ar eru oft al­var­leg­ar og þá ekki ein­göngu fyr­ir þá sem neyta þeirra held­ur einnig þeim sem standa neytendunum nærri. Góðar upp­lýs­ing­ar um notk­un áfeng­is, kanna­bis­efna, örv­andi efna, of­skynj­un­ar­efna, sprautufíkn, stera, sveppi og fleira er að finna á heimasíðu SÁÁ. 

Lesa meira

Aðrar trygg­ingar

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.