Hoppa yfir valmynd

Golf og tryggingar

Það skiptir máli fyrir heilsuna að stunda útiveru og hreyfingu. Golfíþróttin sameinar þetta tvennt og er sannarlega vinsæl hjá landsmönnum. Við mælum með því að allir golfarar kynni sér þær tryggingar sem vernda þá sjálfa sem og golfbúnaðinn.

Í spurningasafninu okkar finnur þú svör við mörgum algengum spurningum. Hafðu samband eða kíktu í heimsókn ef þú hefur einhverjar spurningar — við aðstoðum þig með ánægju.

Tryggingar

  • Heimilistrygging inniheldur frítímaslysatryggingu en hún bætir líkamstjón vegna slysa sem verða í frístundum og við ástundun almenningsíþrótta. Börn í keppnisíþróttum falla undir frítímaslysatryggingu fjölskyldunnar til 18 ára aldurs.
  • Heimilistrygging inniheldur ábyrgðartryggingu en hún bætir líkams- og munatjón sem þú veldur þriðja aðila með golfiðkun á golfvelli eða á æfingasvæði við golfvöll, án tillits til skaðabótaábyrgðar að lögum.
  • Almennur golfbúnaður er skilgreindur sem hluti af innbúi. Heimilistrygging tryggir innbú fyrir bruna, þjófnaði og vatnstjóni. Ef þú ert einnig með innbúskaskótryggingu, sem er valkvæð, þá er búnaðurinn einnig tryggður fyrir tjóni af völdum skyndilegra og ófyrirsjáanlegra utanaðkomandi atvika.
  • Golfbílar eru ekki skilgreindir sem innbú og þarf því að tryggja sérstaklega og við mælum með víðtækri eignatryggingu.
  • Ef þú ætlar í golfferð erlendis þá mælum við með ferðatryggingu heimilistryggingar.
  • Ef þú átt sérstaklega verðmætan golfbúnað þar sem verðmæti fer yfir bótafjárhæðir í innbúskaskó þá er best fyrir þig að hafa samband og við skoðum málið saman.

Gott að vita

  • Ef fjölskyldan er með frítímaslysatryggingu gildir hún ef þið stundið almenningsíþróttir. Börn í keppnisíþróttum falla líka undir frítímaslysatryggingu fjölskyldunnar til 18 ára aldurs. Við mælum því með slysatryggingu fyrir keppnisíþróttafólk sem er 18 ára og eldra.
  • Í heimilistryggingu er hægt að velja um tvær mismunandi tryggingarfjárhæðir og þrjár mismunandi eigin áhættur. Tryggingarfjárhæðin sem valin er ræður því hverjar hámarksbætur eru í tjónum. Eftir því sem eigin áhættan er hærri þeim mun ódýrari er tryggingin en meiri kostnaður tryggingartaka við tjón.
  • Heimilistrygging gildir fyrir þig, maka eða sambúðarmaka og ógift börn ykkar og fósturbörn með sama lögheimili á Íslandi. Tryggingin gildir einnig fyrir börn ykkar yngri en 18 ára sem eiga annað lögheimili á Íslandi.
  • Helsti kosturinn við að vera bæði með ferðatryggingu kreditkorts og ferðatryggingu heimilistryggingar er sá að ef hámarksbótafjárhæð er náð í annarri tryggingunni þá tekur hin tryggingin við ef um er að ræða umfangsmikið tjón.
  • Tryggingar sem taka á þjófnaði gilda einungis ef almenn aðgát er höfð við vörslu hlutanna.
  • Við bendum viðskiptavinum okkar á að passa upp á greiðslukvittanir svo hægt sé að framvísa þeim ef tilkynna þarf tjón.

Þú getur séð yfirlit yfir tryggingarnar þínar í VÍS appinu eða með því að skrá þig inn á vefinn okkar.

Forvarnir
Heilsa

Hreyfing

Hreyf­ing er öll­um nauðsyn­leg og ætti eng­inn að van­meta mik­il­vægi henn­ar. Hreyfing hjálpar til að stuðla að bæði andlegu og líkamlegu heilbrigði. Í bæk­lingi Land­læknisembætt­is­ins Ráðlegg­ing­ar um hreyf­ingu eru grein­argóðar upp­lýs­ing­ar um hreyf­ingu. 
Lesa meira