Skíði og trygg­ingar

Allt skíða­fólk þarf að huga að trygg­inga­vernd sinni hvort sem skíðað er í brekkum innan­lands eða erlendis.

Í spurn­inga­safninu okkar finnur þú svör við mörgum algengum spurn­ingum. Hafðu samband eða kíktu í heim­sókn ef þú hefur einhverjar spurn­ingar — við aðstoðum þig með ánægju.

Tryggingar

  • Heim­il­is­trygging inni­heldur frítíma­slysa­trygg­ingu en hún bætir líkams­tjón vegna slysa sem verða í frístundum og við ástundun almenn­ingsí­þrótta. Börn í keppnisí­þróttum falla undir frítíma­slysa­trygg­ingu fjöl­skyld­unnar til 18 ára aldurs.

  • Skíða­bún­aður skil­greindur sem hluti af innbúi. Heim­il­is­trygging tryggir innbú fyrir bruna, þjófnaði og vatns­tjóni. Ef þú ert einnig með innbúska­skó­trygg­ingu, sem er valkvæð, þá er búnað­urinn einnig tryggður fyrir tjóni af völdum skyndi­legra og ófyr­ir­sjá­an­legra utan­að­kom­andi atvika.

  • Ef þú átt sérstak­lega verð­mætan skíða­búnað þar sem verð­mæti fer yfir bóta­fjár­hæðir í innbúskaskó þá er best fyrir þig að hafa samband og við skoðum málið saman.

Skíða­ferðir erlendis

  • Á sumum skíða­svæðum er farið fram á stað­fest­ingu á ábyrgð­ar­trygg­ingu. Við ráðleggjum alltaf okkar viðskipta­vinum að kaupa trygg­inguna sem boðið er upp á á skíða­svæð­inu. Ástæða þess er sú að okkar ábyrgð­ar­trygging fer eftir íslenskum skaða­bóta­lögum og við vitum ekki hvernig skaða­bóta­skyldan er í viðkom­andi landi.

  • Ef þú ætlar í skíða­ferð erlendis þá mælum við með ferða­trygg­ingu.

Gott að vita

  • Ef fjöl­skyldan er með frítíma­slysa­trygg­ingu gildir hún ef þið stundið almenn­ingsí­þróttir. Börn í keppnisí­þróttum falla líka undir frítíma­slysa­trygg­ingu fjöl­skyld­unnar til 18 ára aldurs. Við mælum því með slysa­trygg­ingu fyrir keppnisí­þrótta­fólk sem er 18 ára og eldra.

  • Í heim­il­is­trygg­ingu er hægt að velja um tvær mismun­andi trygg­ing­ar­fjár­hæðir og þrjár mismun­andi eigin áhættur. Trygg­ing­ar­fjár­hæðin sem valin er ræður því hverjar hámarks­bætur eru í tjónum. Eftir því sem eigin áhættan er hærri þeim mun ódýrari er trygg­ingin en meiri kostn­aður trygg­ing­ar­taka við tjón.

  • Heim­il­is­trygging gildir fyrir þig, maka eða sambúð­armaka og ógift börn ykkar og fóst­ur­börn með sama lögheimili á Íslandi. Trygg­ingin gildir einnig fyrir börn ykkar yngri en 18 ára sem eiga annað lögheimili á Íslandi.

  • Helsti kost­urinn við að vera bæði með ferða­trygg­ingu kred­it­korts og ferða­trygg­ingu heim­il­is­trygg­ingar er sá að ef hámarks­bóta­fjárhæð er náð í annarri trygg­ing­unni þá tekur hin trygg­ingin við ef um er að ræða umfangs­mikið tjón.

  • Kynntu þér þjón­ustu SOS Internati­onal. Gott er að vista síma­núm­erið þeirra áður en þú leggur af stað. Hafðu Evrópska sjúkra­trygg­inga­kortið alltaf meðferðis á ferða­lögum erlendis

  • Slys og tjón vegna snjóflóða eru undan­skilin í öllum ferða­trygg­ingum. Slys sem verða þegar skíðað er utan alfara­leiða eru undan­skilin í ferða­trygg­ingum kred­it­korta.

  • Trygg­ingar sem taka á þjófnaði gilda einungis ef almenn aðgát er höfð við vörslu hlut­anna.

  • Við bendum viðskipta­vinum okkar á að passa upp á greiðslu­kvitt­anir og lækn­is­fræðileg gögn svo hægt sé að fram­vísa þeim ef tilkynna þarf tjón.

Þú getur séð yfirlit yfir trygg­ing­arnar þínar í VÍS appinu eða með því að skrá þig inn á vefinn okkar.

Aðrar trygg­ingar

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.