Fréttasafn

|

28.03.2023

Snjóflóð á Aust­ur­landi

Hugur okkar er hjá Aust­firð­ingum sem eru að upplifa erfiða tíma vegna snjóflóða og snjóflóða­hættu þessa dagana.

Við höfum tekið saman upplýs­ingar fyrir þau sem hafa orðið fyrir tjóni og veitum alla þá aðstoð sem við getum.

Ekki hika við að hafa samband við okkur ef eitt­hvað er óljóst.

Nátt­úru­ham­fara­trygging Íslands (NTÍ) bætir tjón sem verða af völdum snjóflóða líkt og varð í Neskaup­stað og á Seyð­is­firði. Bruna­trygging trygg­inga­fé­lags þarf þó að vera til staðar.

Eftir­far­andi tjón eru tilkynnt til NTÍ

  • Tjón á húseignum. Allar bruna­tryggðar húseignir eru tryggðar fyrir snjóflóðum hjá NTÍ. Bruna­trygging húseigna er skyldu­trygging á Íslandi og er trygg­ing­ar­fjárhæð þeirra samkvæmt bruna­bóta­mati frá Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun (HMS).

  • Tjón á innbúi og öðrum lausa­munum. Bruna­tryggt innbú og aðrir bruna­tryggðir lausa­munir eru tryggðir fyrir snjóflóðum hjá NTÍ.

  • Tjón á bruna­tryggðum bílum. Bílar sem eru ekki með kaskó­trygg­ingu en eru bruna­tryggðir eru tryggðir fyrir snjóflóðum hjá NTÍ.

  • Tilkynna tjón til NTÍ.

  • Ef tjón varð bæði á húseign og innbúi (eða öðrum lausa­munum) þarf að gera tvær tjónstil­kynn­ingar hjá NTÍ.

Kaskótjón bíla eru tilkynnt til VÍS

  • Bílar sem eru með kaskó­trygg­ingu hjá VÍS eru tryggðir fyrir snjóflóðum.

  • Tilkynna kaskótjón til VÍS.

Þú getur séð yfirlit yfir trygg­ing­arnar þínar með því að skrá þig inn.

Fréttasafn
Deila frétt