Fréttasafn

|

02.08.2022

Jarð­skjálftar - forvarnir og trygg­ingar

Vegna jarð­skjálfta­hrinu á Reykja­nesskaga vilj­um við koma eftir­far­andi upplýs­ingum um forvarnir og trygg­ingar á fram­færi. 

Get ég dregið úr líkum á slysum og tjóni?

Já, það getur þú. Við hvetjum þig til að kynna þér efni okkar á vis.is og gera ráðstaf­anir á heim­ilinu og fara yfir rétt viðbrögð ef stór jarð­skjálfti verður.

Hver bætir tjón af völdum jarð­skjálfta og eldgosa?

Nátt­úru­ham­fara­trygging Íslands (NTI) bætir tjón á bruna­tryggðum húseignum sem verða fyrir tjóni vegna eldgoss og jarð­skjálfta. Hún bætir einnig tjón á innbúi og öðrum innan­stokks­mun­um ef fjöl­skyldu- eða lausa­fjár­trygging er til staðar. Tjón ber að tilkynna til þeirra. Vert er að benda á að eigin áhætta innbústjóna hjá NTÍ er að lágmarki kr. 200.000 og að lágmarki kr. 400.000 í húseig­enda­tjónum.

Hvað með mínar trygg­ingar?
  • Fast­eignir
    Ef þú átt fast­eign, sama hvort er íbúð­ar­hús­næði, atvinnu­hús­næði, bíla­geymslur, útihús, sumarhús eða hest­hús, ber þér að kaupa lögboðna bruna­trygg­ingu. Með henni myndast sjálf­krafa vernd hjá Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingu Íslands. Ef bruna­bótamat endur­speglar ekki verð­mæti húsnæð­isins þá er hægt að kaupa viðbót­ar­bruna­trygg­ingu.

  • Innbú
    Ef þú ert með F plús fjöl­skyldu­trygg­ingu eða lausa­fjár­trygg­ingu þá er innbúið bruna­tryggt og þar af leið­andi bætir Nátt­úru­ham­fara­trygging Íslands það. Mikil­vægt er að trygg­inga­verndin endur­spegli verð­mæti innbús en reynsla NTÍ ­segir að allt að þrjátíu prósent innbúa og lausa­fjár heimila og fyrir­tækja sé ekki tryggt vegna tjóna af völdum nátt­úru­ham­fara. Hér getur þú ætl­að ­verð­mæti innbús­ins.

  • Bílar
    Jarð­skjálftar og eldgos eru undan­skilin í kaskó­trygg­ingu bíla en NTI bætir tjón sem verður vegna þess á bruna­tryggðum bílum. Við hvetjum því viðskipta­vini okkar til að taka bruna­trygg­ingu ökutækja á bíla sína.

  • Vinnu­vélar
    Ef þú ert með kaskó­trygg­ingu vinnu­véla hjá okkur þá bætir hún tjón vegna eldgosa og jarð­skjálfta.

Hvar get ég séð trygg­ing­arnar mínar?

Þú getur séð yfirlit yfir trygg­ingar þínar með því að skrá þig inn á vis.is.  Ekki hika við að hafa samband við okkur á vis@vis.is eða á netspjall okkar eða í síma 560-5000 ef þú ert í einhverjum vafa, vilt breyta eða bæta við trygg­inga­vernd þína.

Fréttasafn
Deila frétt