Húftrygging smábáta
Húftrygging smábáta er fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem nota báta, t.d. til fiskveiða í atvinnuskyni. Tryggingin bætir ýmis tjón sem verða á sjó eða á landi á bátnum sjálfum.
Einnig bætir tryggingin skaðabótaskylt tjón, verði mistök við stjórnun bátsins sem leiðir til áreksturs og skemmda á eigum annarra.
Tryggingin bætir
Önnur tjón en altjón
- Tjón á bátnum sem verður vegna eldsvoða, sprengingu, strands, ásiglingu á mannvirki eða rekald, þar með talinn ís. Einnig árekstur við annan bát.
- Tjón af völdum brotsjós, t.d. ef báturinn eða hlutar hans brotna.
- Kostnað við björgun og eðlilegan kostnað við ráðstafanir til þess að varna tjóni.
- Tjón sem verður vegna innbrots, þjófnaðar eða skemmdarverka.
- Tjón á bátnum sem verður við sjósetningu.
- Tjón sem verður í flutningi til og frá geymslustað innan sama lögsagnarumdæmis.
Bætur í altjóni
- Tjón ef bátur ferst eða verður fyrir svo miklum skemmdum að ekki er hægt að bjarga honum eða gera við hann. Kostnaður við að bjarga bátnum og gera við hann er hærri en tryggingarfjárhæðin.
- Tjón ef bátur týnist og hefur ekki fundist þremur mánuðum síðar.
- Tjón ef bátur er hernuminn eða kyrrsettur af erlendu ríki og ekki látinn laus innan sex mánaða.
- Tjón sem skipið veldur með árekstri og vegna mistaka við stjórnun þess.
- Kostnaður við að fjarlægja flak báts þriðja aðila.
Tryggingin bætir ekki
- Þann hluta tjónsins sem fellur undir eigin áhættu.
- Tjón á bátnum af öðrum orsökum en talin eru hér að ofan.
- Tjón sem stafar af fúa, tæringu, sliti eða sambærilegum orsökum.
- Tjón sem rakið verður til hönnunargalla.
- Tjón sem verður vegna samsláttar við báta, skip eða hafnarmannvirki.
- Óbeint tjón, svo sem aflatjón og kostnað sem stafar af töf.
- Skaðabótakröfur frá starfsmönnum, eiganda eða útgerðarmanns bátsins, né skaðabótakröfur frá eigendum afla né annars sem báturinn flytur.
- Tjón þriðja manns vegna ábyrgðar vátryggðs á skemmdum munum eða glataðra muna sem þú hefur til vörslu.
- Sektir og önnur refsiviðurlög.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Árlega færðu upplýsingar frá okkur varðandi endurnýjun trygginga þinna. Sjá nánar á síðunni endurnýjun trygginga sem finna má hér fyrir neðan.