Viðbótarbrunatrygging
Viðbótarbrunatrygging húseigna er fyrir þá sem gert hafa endurbætur á húseign sinni og eru ekki búnir að láta endurmeta brunabótamatið. Tryggingin er því góð viðbót við brunatryggingu húseigna sem er skyldutrygging.
Bætur eru greiddar úr viðbótarbrunatryggingu ef kostnaður við endurbyggingu húseignar fer umfram brunabótamat.
Tryggingin bætir
- Brunatjón.
- Skyndilegt sótfall.
- Fall loftfara á húsnæði.
- Slökkvi- og björgunaraðgerðir til að forðast eða takmarka tjón.
Tryggingin bætir ekki
- Kostnað vegna hreinsunar úrgangs- eða eiturefna í umhverfi eða jarðvegi vegna bótaskylds atburðar.
- Skemmdir sem verða ef hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
- Sóts eða reyks sem safnast hefur smám saman, s.s. sót frá reykháfi eða kertum.
- Óbeint tjón, s.s. rekstrartap, töf á framleiðslu eða afhendingu vöru, missi húsaleigutekna o.þ.h.
Trygging frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands er einnig innifalin. Sú trygging bætir tjón vegna eldgosa, jarðskjálfta, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Árlega færðu upplýsingar frá okkur varðandi endurnýjun trygginga þinna. Sjá nánar á síðunni endurnýjun trygginga sem finna má hér fyrir neðan.