Hoppa yfir valmynd

Óveðurstrygging húseigna

Óveðurstrygging tryggir húseignina þína fyrir óveðri.

Tryggingin er valkvæð og er góð viðbót við brunatryggingu húseigna sem er skyldutrygging.

Tryggingin bætir

  • Tjón vegna óveðurs þegar vindhraði nær 28,5 metrum á sekúndu.

Tryggingin bætir ekki

  • Kostnað við að ryðja rústir.
  • Tjón á loftnetum, fánastöngum, girðingum og gróðri.
  • Tjón vegna stöðvunar á rekstri eða annars óbeins tjóns.
  • Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
  • Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.

Skilmálar og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Aðrar upplýsingar