Lögboðin sjúk­linga­trygging

Samkvæmt nýjum lögum færist lögboðin sjúk­linga­trygging frá trygg­inga­fé­lögum til Sjúkra­trygg­inga Íslands (SÍ) frá og með 1. janúar 2025.

Lögboðin sjúk­linga­trygging SÍ mun taka til tjóns­at­vika sem verða frá og með 1. janúar 2025. Hins vegar byggir sjúk­linga­trygging trygg­inga­fé­lag­anna á kröfu­gerð­ar­reglu og nær hún því yfir kröfur sem koma upp á trygg­inga­tíma­bilinu þrátt fyrir að atvik sem leiddu til kröfu hafi verið fyrr.

Til þess að koma í veg fyrir að gat myndist í trygg­inga­vernd heil­brigð­is­starfs­fólks vegna fyrri ára verður heil­brigð­is­starfs­fólk að vera áfram tryggt hjá sínu trygg­inga­fé­lagi með svokall­aðri sólar­lags­vernd.

Sjá nánari umfjöllun:

Dæmi: Ef atvik er tilkynnt eftir 1. janúar 2025 og atvikið átti sér stað í byrjun árs 2024 þá mun nýja lögboðna sjúk­linga­trygg­ingin ekki taka á atvikinu og ekki heldur sjúk­linga­trygg­ingin sem viðkom­andi er með í dag þar sem hún fellur niður um áramót.

  • Við gefum út sólar­lags­vernd til allra viðskipta­vina sem voru með gilda sjúk­linga­trygg­ingu áramótin 2024/2025. Trygg­ingin gildir frá 1. janúar 2025 til 31. desember 2034.

  • Einungis er greitt fyrir trygg­inguna á árinu 2025.

  • Sólar­lags­verndin er eins og sjúk­linga­trygging er í dag hjá okkur og byggir einnig á kröfu­gerð­ar­reglu.

  • Sólar­lags­verndin mun taka á hugs­an­legum ótil­kynntum atvikum sem áttu sér stað fyrir 1. janúar 2025.

Tryggingin greiðir

  • Bætur vegna líkam­legs eða geðræns tjóns sjúk­lings.

  • Bætur til þeirra sem sjúk­lingur hefur á fram­færi ef hann deyr vegna mistaka hins tryggða.

Tryggingin greiðir ekki

  • Bætur vegna líkams­tjóns eða geðræns tjóns annarra en sjúk­lingsins sjálfs.

  • Sektir og önnur viðurlög sem kunna að falla á þig.

  • Vinsam­legast athugaðu að umfjöllun um trygg­inguna er ekki tæmandi. Nánari upplýs­ingar er að finna í skil­mála trygg­ing­ar­innar.

  • Sé ósam­ræmi milli umfjöll­un­ar­innar og skil­málans þá gildir skil­mál­inn.

Frjálsar starfs­ábyrgð­ar­trygg­ingar

Við bendum heil­brigð­is­starfs­fólki á mikil­vægi þess að tryggja sér viðbót­ar­vernd með ábyrgð­ar­trygg­ingu heil­brigð­is­starfs­fólks. Slík vernd getur mætt tjóni umfram hámarks­fjár­hæðir sjúk­linga­trygg­ingar þegar skaða­bóta­ábyrgð stofnast samkvæmt íslenskum lögum og ýmsum öðrum bóta­kröfum sem kunna að koma fram í tengslum við starf­semi viðkom­andi.

Ábyrgð­ar­trygging heil­brigð­is­starfs­fólks

  • Ábyrgð­ar­trygg­ingu heil­brigð­is­starfs­fólks er ætlað að bæta tjón sjúk­lings/skjól­stæð­ings eða þriðja aðila.

  • Ábyrgð­ar­trygg­ingin er ekki skyldu­trygging en við leggjum ríka áherslu á að sjálf­stætt starf­andi heil­brigð­is­starfs­fólk taki þessa trygg­ingu til viðbótar við sjúk­linga­trygg­ingu.

  • Ef þessi trygging er nú þegar til staðar er mikil­vægt að halda áfram að vera með hana.

Ábyrgð­ar­trygging atvinnu­rekstrar

  • Ábyrgð­ar­trygg­ingu atvinnu­rekstrar er ætlað að bæta tjón þriðja aðila þegar rekstr­ar­aðili verður skaða­bóta­skyldur samkvæmt íslenskum lögum.

  • Hún tekur ekki til tjóns sem sjúk­ling­ur/skjól­stæð­ingur heil­brigð­is­starfs­fólks verður fyrir í tengslum við starf viðkom­andi og er því ekki viðbót við sjúk­linga­trygg­ingu.

Ef þú ert ekki með ábyrgð­ar­trygg­ingu heil­brigð­is­starfs­fólks mælum við eindregið með því að þú hafir samband við okkur og fáir frekari ráðgjöf hjá starfs­fólki okkar.

Þú getur séð yfirlit yfir trygg­ing­arnar þínar með því að skrá þig inn á vefinn okkar.

Skil­málar og aðrar upplýs­ingar

Trygg­inga­skil­málar eru samn­ingur þinn við VÍS. Mikil­vægt er að þú kynnir þér skil­málana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en trygg­ingin er tekin.

Í upplýs­inga­skjali er að finna stutta saman­tekt á helstu þáttum trygg­ing­ar­innar. Upplýs­inga­skjöl eru stöðluð skjöl sem öllum trygg­inga­fé­lögum ber að birta og auðveldar þannig viðskipta­vinum trygg­inga­fé­lag­anna að bera saman trygg­ingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Skoða fleiri trygg­ingar

Við mælum með því að öll fyrir­tæki stór og smá séu með ábyrgð­ar­trygg­ingu atvinnu­rekstrar, slysa­trygg­ingu laun­þega og lausa­fjár­trygg­ingu.

Ábyrgð­ar­trygging atvinnu­rekstrar

Trygg­ingin er ætluð fyrir­tækjum og rekstr­ar­að­ilum í þeim tilgangi að bæta tjón þegar skaða­bóta­ábyrgð skap­ast.

Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar

AA20

Ábyrgðartryggingar

Slysa­trygging laun­þega

Atvinnu­rek­endur eru samkvæmt kjara­samn­ingum skyldugir að bæta slys sem starfs­fólk verður fyrir í vinnu sinni. Slysa­trygging laun­þega er sniðin að þörfum atvinnu­rek­enda til að uppfylla skyldur sínar gagn­vart starfs­fólki sínu.

Sjúkra- og slysatryggingar

Slysatrygging launþega

SÞ20

Slysa­trygging

Slysa­trygging er fyrir einyrkja og þau sem eru ekki í stétt­ar­fé­lagi. Hún er einnig fyrir þau sem eru slysa­tryggð en vilja eiga rétt á hærri bótum eða víðtækari vernd.

Sjúkra- og slysatryggingar

Slysatrygging

SS10

Sjúkra­trygging

Sjúkra­trygging er fyrir þau sem vilja vera vel tryggð ef þau fá sjúkdóm og geta ekki stundað vinnu sína lengur.

Sjúkra- og slysatryggingar

Sjúkratrygging

SJ11

Lausa­fjár­trygging

Trygg­ingin nær til þeirra muna sem ekki eru hluti af húseign. Má þar nefna vélar, lager, tölvu­búnað, húsgögn og verk­færi.

Eignatryggingar

Lausafjártrygging

EL10

Víðtæk eigna­trygging

Trygg­ingin nær til þeirra muna sem ekki eru hluti af húseign.

Eignatryggingar

Víðtæk eignatrygging

EE10

Rekstr­ar­stöðv­unar- og auka­kostn­að­ar­trygging

Trygg­ingin bætir tapaða fram­legð sem verður við stöðvun rekstrar og leiðir af sér samdrátt í sölu eða þjón­ustu.

Eignatryggingar

Rekstrarstöðvunartrygging

ER20

Lögboðin ökutækja­trygging

Skyldu­trygging fyrir öll ökutæki. Trygg­ingin bætir tjón sem ökutækið þitt veldur öðrum sem og slys sem þú eða sá sem keyrir ökutækið verður fyrir.

Ökutækjatryggingar

Lögboðin ábyrgðartrygging ökutækis

BA10

Kaskó­trygging ökutækis

Kaskó­trygging bætir öll tjón á bílnum þínum nema annað sé tekið fram í skil­mála eða skír­teini.

Ökutækjatryggingar

Kaskótrygging ökutækis

BK10

Vinnu­véla­trygging

Trygg­ingin tekur á tjónum sem verða á tryggðri vinnuvél vegna skyndi­legs og ófyr­ir­sjá­an­legs utan­að­kom­andi atviks.

Eignatryggingar

Vinnuvélatrygging

EE50

Húseig­enda­trygging atvinnu­hús­næðis

Trygg­ingin veitir víðtæka vernd gegn óvæntum og skyndi­legum atburðum sem leiða til tjóns á fast­eignum.

Eignatryggingar

Húseigendatrygging

GF10

Víðtæk flutn­ings­trygging

Trygg­ingin er fyrir þá sem láta flytja fyrir sig verð­mæti með viður­kenndum flutn­ings­aðila milli landa eða innan­lands.

Flutningstryggingar

Flutningstryggingar A

MC10

Víðtæk flutningstrygging