Hoppa yfir valmynd

Lögboðin ábyrgðartrygging farsala og flutningsaðila

Ábyrgðartrygging farsala og flutningsaðila er lögboðin trygging fyrir þá sem sigla með farþega og selja í ferðir, t.d. skemmtisiglingar eða skoðunarferðir. Ábyrgð þeirra sem hafa atvinnu af slíkri starfsemi er mikil og því mikilvægt að trygging sé til staðar.

Ábyrgðartryggingunni er ætlað að bæta þau tjón sem farþegar geta orðið fyrir. Má þar helst nefna að farþegi slasast eða lætur lífið eða að farangur hans týnist eða skemmist á meðan á ferð stendur.

Tryggingin bætir

  • Tjón sem hlýst af því ef farþegi slasast eða lætur lífið.
  • Tjón ef farangur týnist eða skemmist meðan ferð skipsins stendur yfir.
  • Tjón sem stafar af seinkun vegna flutninga á farþega eða farangri.

Tryggingin gildir einnig um flutning milli skips og lands, enda er sá flutningur innifalinn í fargjaldinu eða flutningurinn fer fram með farartæki sem farsali leggur til.

Tryggingin bætir ekki

  • Þann hluta tjónsins sem fellur undir eigin áhættu.
  • Tjón ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð, svo sem ef þú ert farsali eða flutningsaðili.
  • Sektir og önnur viðurlög.
  • Tjón sem verður áður en farþegi stígur á skipsfjöl og eftir þann tíma að hann er farinn frá borði.
  • Tjón sem annar ber ábyrgð á, t.d. sá sem sér um hluta flutningsins samkvæmt farmsamningi.
  • Tjón á lifandi dýrum sem eru flutt sem farangur.
  • Tjón eða tap á peningum, verðbréfum eða öðrum verðmætum, t.d. gulli, silfri, úrum, gimsteinum, skartgripum eða listmunum, nema farsali hafi tekið við þeim og sett í öryggisgeymslu.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Skilmálar og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Árlega færðu upplýsingar frá okkur varðandi endurnýjun trygginga þinna. Sjá nánar á síðunni endurnýjun trygginga sem finna má hér fyrir neðan.

Aðrar upplýsingar

Skoða fleiri tryggingar

Við mælum með því að öll fyrirtæki stór og smá séu með ábyrgðartryggingu atvinnurekstrar, slysatryggingu launþega og lausafjártryggingu.

Ábyrgð­ar­trygging atvinnu­rekstrar

Tryggingin er ætluð fyrirtækjum og rekstraraðilum í þeim tilgangi að bæta tjón þegar skaðabótaábyrgð skapast.

Slysa­trygging laun­þega

Atvinnurekendur eru samkvæmt kjarasamningum skyldugir að bæta slys sem starfsfólk verður fyrir í vinnu sinni. Slysatrygging launþega er sniðin að þörfum atvinnurekenda til að uppfylla skyldur sínar gagnvart starfsfólki sínu.

Slysa­trygging

Slysatrygging er fyrir einyrkja og þau sem eru ekki í stéttarfélagi. Hún er einnig fyrir þau sem eru slysatryggð en vilja eiga rétt á hærri bótum eða víðtækari vernd.

Sjúkra­trygging

Sjúkratrygging er fyrir þau sem vilja vera vel tryggð ef þau fá sjúkdóm og geta ekki stundað vinnu sína lengur.

Lausa­fjár­trygging

Tryggingin nær til þeirra muna sem ekki eru hluti af húseign. Má þar nefna vélar, lager, tölvubúnað, húsgögn og verkfæri.

Víðtæk eigna­trygging

Tryggingin nær til þeirra muna sem ekki eru hluti af húseign.

Rekstr­ar­stöðv­un­ar­trygging

Tryggingin bætir rekstrartap sem verður við stöðvun rekstrar og leiðir af sér samdrátt í sölu eða þjónustu.

Lögboðin ökutækja­trygging

Skyldutrygging fyrir öll ökutæki. Tryggingin bætir tjón sem ökutækið þitt veldur öðrum sem og slys sem þú eða sá sem keyrir ökutækið verður fyrir.

Kaskó­trygging ökutækis

Kaskótrygging bætir öll tjón á bílnum þínum nema annað sé tekið fram í skilmála eða skírteini.

Vinnu­véla­trygging

Tryggingin tekur á tjónum sem verða á tryggðri vinnuvél vegna skyndilegs og ófyrirsjáanlegs utanaðkomandi atviks.

Húseig­enda­trygging atvinnu­hús­næðis

Tryggingin veitir víðtæka vernd gegn óvæntum og skyndilegum atburðum sem leiða til tjóns á fasteignum.

Víðtæk flutn­ings­trygging

Tryggingin er fyrir þá sem láta flytja fyrir sig verðmæti með viðurkenndum flutningsaðila milli landa eða innanlands.