Hópslysatrygging íþróttaiðkenda
Hópslysatrygging íþróttaiðkenda tryggir íþróttaiðkendur þess íþróttafélags sem kaupir trygginguna. Tryggingin nær yfir þau slys sem iðkendur verða fyrir á æfingum eða í keppni á vegum sinna íþróttafélaga. Einnig er hægt að bæta við trygginguna sjúkrakostnaði erlendis.
Hópslysatrygging íþróttaiðkenda tryggir íþróttaiðkendur þess íþróttafélags sem kaupir trygginguna. Tryggingin nær yfir þau slys sem iðkendur verða fyrir á æfingum eða í keppni á vegum sinna íþróttafélaga. Einnig er hægt að bæta við trygginguna sjúkrakostnaði erlendis.
Tryggingin bætir
Slysatrygging
-
Ef tryggður einstaklingur lendir í slysi við íþróttaiðkun eru greiddar bætur. Þetta geta verið dagpeningar, miskabætur, bætur vegna tannbrots og dánarbætur.
Sjúkrakostnaður erlendis (valkvæð)
-
Ef tryggður einstaklingur slasast, veikist eða deyr í keppnisferð erlendis eru greiddar bætur. Þetta getur verið sjúkrakostnaður, kvalastillandi tannviðgerðir og heimflutningur.
Tryggingin bætir ekki
Slysatrygging
-
Slys sem orðið hafa áður en tryggingin tók gildi og ekki afleiðingar slíkra slysa þó þær komi ekki fram fyrr en eftir gildistöku tryggingar.
-
Tjón á tönnum sem brotna þegar tryggður matast.
Sjúkrakostnaður erlendis (valkvæð)
-
Kostnað sem greiddur er skv. gagnkvæmum samningi um sjúkratryggingar.
-
Kostnað við meðferð eða eftirmeðferð á Íslandi eða í dvalarlandi.
Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Skilmálar og upplýsingaskjal
Aðrar tryggingar
Við mælum með því að öll fyrirtæki stór og smá séu með ábyrgðartryggingu atvinnurekstrar, slysatryggingu launþega og lausafjártryggingu.