
Fyrsti bíllinn
Það er skylda að tryggja öll ökutæki með ökutækjatryggingu og ef þú vilt vera með góðar alhliða ökutækjatryggingar mælum við einnig með bílrúðutryggingu og kaskótryggingu.
Hafðu samband eða kíktu í heimsókn — við aðstoðum þig með ánægju.
Ökutækjatryggingar
Ásamt hefðbundnum ökutækjatryggingum býður VÍS einnig upp á að tryggja ökutæki með Ökuvísi. Markmiðið með Ökuvísi er að auka umferðaröryggi og fækka umferðaróhöppum. Þeir viðskiptavinir okkar sem tryggja bílana sína með Ökuvísi lenda síður í slysum en aðrir viðskiptavinir.
Ökutækjatrygging
Skyldutrygging fyrir öll ökutæki. Tryggingin bætir tjón sem ökutækið þitt veldur öðrum sem og slys sem þú eða sá sem keyrir ökutækið verður fyrir.

Bílrúðutrygging
Bílrúðutrygging bætir tjón á framrúðu, afturrúðu og hliðarrúðum ökutækis.

Kaskótrygging
Kaskótryggingin bætir öll tjón á bílnum þínum, nema annað sé sérstaklega tekið fram í skilmála. Því er góð hugmynd að kaskótryggja bílinn.

Ökuvísir
Ökuvísir er app sem inniheldur lögboðna ökutækjatryggingu og bílrúðutryggingu og þú getur einnig bætt við kaskótryggingu. Því betur sem þú keyrir, því minna borgar þú.





