Víðtæk eignatrygging
Víðtæk eignatrygging nær til þeirra muna sem ekki eru hluti af húseign. Má þar nefna tæki eins og síma, tölvur og myndavélar. Tryggingin hefur víðtæka vernd og bætir tjón sem er skyndilegt og ófyrirséð.
Tryggingunni fylgir vernd fyrir náttúruhamförum frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands.
Tryggingin bætir
- Beint tjón sem verða af völdum skyndilegs og ófyrirsjáanlegs utanaðkomandi atviks sem eru ekki undanskilin sérstaklega.
Tryggingin bætir ekki
- Þann hluta tjónsins sem fellur undir eigin áhættu.
- Tjón sem orsakast af snöggum hita og/eða rakabreytingum.
- Tjón sem stafa af eðlilegu sliti, galla, rangri samsetningu eða innri bilunar, til dæmis vélrænum bilunum.
Trygging frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands er einnig innifalin. Sú trygging bætir tjón vegna eldgosa, jarðskjálfta, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Árlega færðu upplýsingar frá okkur varðandi endurnýjun trygginga þinna. Sjá nánar á síðunni endurnýjun trygginga sem finna má hér fyrir neðan.