Fiskiskipatrygging
Fiskiskipatrygging tryggir skip sem notuð eru til fiskveiða í atvinnuskyni. Hún er samsett úr tveimur tryggingum. Húftryggingu sem bætir ýmis tjón sem verða á skipinu, á sjó eða á landi og ábyrgðartryggingu sem bætir tjón þriðja aðila.
Hægt er að bæta við hagsmunatryggingu fyrir fiskiskip en þeirri tryggingu er ætlað að bæta fjárhagslegt tjón útgerðar við missi á skipi í altjóni.
Vilji eigandi skips aðeins tryggja það fyrir altjóni er hægt að velja altjónstryggingu fyrir báta og skip í stað fiskiskipatryggingar.

Tryggingin bætir
Húftrygging
-
Skemmdir á skipinu vegna skyndilegrar og óvæntrar óhappatilviljunar.
-
Skemmdir sem stafa af því að galli er í efni skipsins, smíða- eða viðgerðargallar sem ekki bætast af viðgerðaraðila.
-
Skemmdir sem raktar verða til einfalds gáleysis skipverja eða þriðja aðila.
-
Altjón ef skip ferst eða týnist og hefur ekki fundist þremur mánuðum síðar.
Ábyrgðartrygging
-
Beint líkams- eða munatjón þriðja aðila vegna skaðabótaábyrgðar sem fellur á tryggingartaka vegna tjóns sem bátur veldur með árekstri eða verður vegna mistaka við stjórnun hans.
Tryggingin bætir ekki
Húftrygging
-
Tjón sem stafar af ófullnægjandi viðhaldi, fúa, tæringu eða sliti.
-
Tjón sem rakið verður til hönnunargalla.
-
Óbeint tjón svo sem aflatjón og kostnað sem stafar af töf.
Ábyrgðartrygging
-
Skaðabótakröfu frá starfsfólki eiganda eða útgerðarmanns skipsins, né skaðabótakröfu frá eigendum afla eða annars sem skipið flytur.
-
Sektir og önnur refsiviðurlög.
Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Hagsmunatrygging fyrir fiskiskip
Altjónstrygging báta og skipa
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Aðrar tryggingar
Við mælum með því að öll fyrirtæki stór og smá séu með ábyrgðartryggingu atvinnurekstrar, slysatryggingu launþega og lausafjártryggingu.