Ylræktartrygging
Ylræktartrygging er ætluð fyrirtækjum sem leggja stund á hefðbundna ræktun í gróðurhúsum eins og ræktun á grænmeti og gróðri. Tryggingin bætir tjón vegna bruna, vatns, innbrota, óveðurs, breytingu á hitastigi og skyndilegs snjóþunga.
Við tjón verður oft mikill kostnaður vegna hreinsunar, förgunar og uppsetningar sem hægt er að tryggja sérstaklega.
Tryggingunni fylgir vernd fyrir náttúruhamförum frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands.
Tryggingin bætir
- Brunatjón.
- Vatnstjón vegna leka úr leiðslukerfi, skyndilegt úrhelli og asahláku og leka á olíu eða kælivökva.
- Innbrot og rán.
- Óveðurstjón á lausafé innanhús þegar vindur nær 28,5 metrum á sekúndu og hefur rofið þak, glugga eða aðra hluti hússins.
- Tjón á ræktun af völdum breytingar á hitastigi sem verður vegna bilunar í tækjabúnaði, rafmagnsbilana, bilana í hitakerfum og vatnsleiðslum.
- Tjón vegna skyndilegs snjóþunga sem sligað hefur þak eða veggi gróðurhússins.
- Hreinsun og förgun eftir tjón.
- Uppsetningu eftir tjón.
Tryggingin bætir ekki
- Þann hluta tjónsins sem fellur undir eigin áhættu.
- Þegar hlutir sviðna, bráðna eða ofhitna án þess að eldur sé laus.
- Vatnstjón vegna utanaðkomandi vatns.
- Tjón af völdum byggingarvinnu eða viðhalds.
- Tjón sem er afleiðing byggingargalla.
- Tjón á ræktun sem geymd er utandyra.
Trygging frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands er einnig innifalin. Sú trygging bætir tjón vegna eldgosa, jarðskjálfta, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Árlega færðu upplýsingar frá okkur varðandi endurnýjun trygginga þinna. Sjá nánar á síðunni endurnýjun trygginga sem finna má hér fyrir neðan.