Fréttasafn

|

04.05.2023

Nýtt skipurit og fram­kvæmda­stjórn

Undan­farin misseri hefur rík áhersla verið á sókn hjá félag­inu. Mark­miðið er að veita framúrsk­ar­andi þjón­ustu ásamt því að tryggja arðsemi félags­ins.

Skipu­riti félagsins hefur nú verið breytt til þess að styðja enn betur við þá vegferð.

  • Sala og þjón­usta: Þjón­usta, sala, mark­aðsmál og upplif­anir, einstak­lings- og fyrir­tækja­við­skipti, stofn­stýring og verð­lagning tilheyra nú sviðinu sala og þjón­usta. Sókn og sala, verð­lagning og þjón­usta eru nú á sama sviði. Markmið sviðsins er að tryggja framúrsk­ar­andi þjón­ustu og að viðskipta­vinir VÍS séu með rétta og viðeig­andi vernd.

  • Trygg­ingar og tjón: Tjóna­deildir, vöru­þróun og viðskiptaum­sjón tilheyra nú nýju sviði sem nefnist trygg­ingar og tjón. Markmið sviðsins er að þróa trygg­ingar með þarfir viðskipta­vina að leið­ar­ljósi og að vera traust bakland í óvissu lífs­ins, þannig að viðskipta­vinir sem verða fyrir tjóni, fái sem bestu þjón­ustu við úrlausn sinna mála.

  • Fjármál og tækni: Fjár­mál, staf­rænar lausnir og upplýs­inga­ör­yggi tilheyra sviðinu fjármál og tækni. Þar sem viðræður standa yfir um kaup VÍS á öllu hlutafé í Fossum fjár­fest­ing­ar­banka er beðið með ráðn­ingu á fram­kvæmda­stjóra sviðs­ins. Reynir Jóhanns­son, forstöðu­maður fjár­mála, og Ingólfur Þorsteins­son, forstöðu­maður staf­rænna lausna, stýra daglegum rekstri deild­anna.

  • Viðskipta­greind: Þá verður einnig lögð áhersla á nýtingu gagna í ákvarð­ana­töku og að auka skil­virkni í starf­semi félags­ins. Forstöðu­maður viðskipta­greindar mun því taka sæti í fram­kvæmda­stjórn.

Eftir­far­andi breyt­ingar hafa verið gerðar á fram­kvæmda­stjórn félags­ins:

  • Ingi­björg Ásdís Ragn­ars­dóttir hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri sölu og þjón­ustu. Ingi­björg Ásdís var áður forstöðu­maður mark­aðs­mála og upplifana hjá VÍS en hún hóf störf hjá félaginu árið 2021. Áður starfaði hún meðal annars hjá Icelandair sem forstöðu­maður þjón­ustu og notenda­upp­lifana og sem svæð­is­stjóri flug­fé­lagsins á Íslandi. Ingi­björg er með MBA-gráðu frá Háskól­anum í Reykjavík og BS-gráðu í viðskipta­fræði frá sama skóla.

  • Sindri Sigur­jónsson hefur verið ráðinn fram­kvæmda­stjóri trygg­inga og tjóna. Sindri starfar nú sem fram­kvæmda­stjóri ráðgjafa­fyr­ir­tæk­isins Expectus þar sem hann starfar við ráðgjöf og stefnu­mótun hjá mörgum af stærstu fyrir­tækjum lands­ins. Sindri er með meist­ara­gráðu (M.Sc.) í aðgerð­ar­grein­ingu frá London School of Economics og með BS-gráðu í iðnað­ar­verk­fræði frá Háskóla Íslands.

  • Jón Árni Traustason, forstöðu­maður viðskipta­greindar, mun taka sæti í fram­kvæmda­stjórn félags­ins. Jón Árni hóf störf hjá VÍS árið 2018 en hann starfaði meðal annars áður hjá Skelj­ungi sem forstöðu­maður upplýs­inga­tækni og viðskipta­greindar. Jón Árni er með meist­ara­gráðu (M.Sc) í fjár­mála­stærð­fræði frá háskól­anum í Uppsala í Svíþjóð og BS-gráðu í stærð­fræði frá Háskóla Íslands.

Auk fyrr­greindra sitja í fram­kvæmda­stjórn Guðný Helga Herberts­dóttir, forstjóri, og Anna Rós Ívars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri mannauðs og menn­ingar.

Guðný Helga Herberts­dóttir, forstjóri VÍS:

„VÍS hefur gengið í gegnum miklar breyt­ingar á síðustu árum. Nú tökum við næsta skref á þeirri vegferð þar sem við stór­aukum áherslu á framúrsk­ar­andi þjón­ustu og sókn félagsins á landinu öllu. Það eru öflugir liðs­menn sem skipa nýja fram­kvæmda­stjórn sem ég er full­viss um að eigi eftir að leiða félagið áfram til árang­urs. Ég vil þakka öflugu starfs­fólki VÍS fyrir frábært starf á óvenju­legum tímum og ég hlakka til komandi tíma.”

Fréttasafn
Deila frétt