Fréttasafn

|

29.12.2022

Við þökkum fyrir viðskiptin og samfylgdina á árinu

Nú í lok árs er gott  að rifja upp árið sem senn er á enda og var eftir­minni­legt fyrir margra hluta sakir. Ég vil byrja á því að þakka þér fyrir viðskiptin og samfylgdina á árinu. Við erum þakklát fyrir traustið og hlökkum til næsta árs ─ og erum klár að mæta því óvænta með þér.

Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS

Traust bakland í óvissu lífsins

Hlut­verk okkar sem trygg­inga­fé­lag er að vera traust bakland í óvissu lífs­ins. Við viljum hjálpa viðskipta­vinum okkar að velja viðeig­andi trygg­inga­vernd svo þeir séu betur undir­búnir fyrir lífsins ólgu­sjó. Lífið getur verið fyrir­sjá­an­legt en stundum kemur það á óvart, tekur jafnvel óvænta beygju sem við eigum síst von á. Ef eitt­hvað kemur upp á, þá erum við til staðar.

Góð þjón­usta skiptir okkur öllu máli

Við leit­umst sífellt eftir því að bæta þjón­ustuna með það að leið­ar­ljósi að auka ánægju viðskipta­vina okkar. Það sann­aðist þegar við urðum hástökkvarar í Ánægju­vog­inni í byrjun ársins. Við vitum að góð þjón­usta og skjót viðbrögð skiptir öllu máli, ekki síst þegar við lendum í tjóni. Í mörgum tilfellum er útgreiðsla tjóna orðin sjálf­virk og bætur greiðast út oft á einungis nokkrum mínútum. Þetta verður að vera einfalt, því við vitum hvað tíminn er dýrmætur.

Keyrum vel og borgum minna

Við höfum skýran vilja til þess að breyta því hvernig trygg­ingar virka. Þetta þýðir að við hugsum trygg­ing­arnar upp á nýtt ─ og höfum hugrekki til þess að fara nýjar leiðir. Á árinu 2021 kynntum við Ökuvísi til sögunnar sem er ný leið til þess að tryggja bílinn og hvetur viðskipta­vini okkar til þess að keyra vel  ─ og borga þá minna. Í upphafi ársins sáum við að Ökuvísir hafði mjög góð áhrif á akst­urslag viðskipta­vina okkar, í raun­inni betri en við gerðum ráð fyrir. Því gátum við lækkað verðið enn frekar til þeirra sem keyra vel.

Við erum stolt af því að Ökuvísir hlaut Íslensku vefverð­launin fyrir bæði tækni­lausn ársins sem og app ársins. Með Ökuvísi erum við svo sann­ar­lega að breyta því hvernig trygg­ingar virka ─ hefur þú prófað?

Verð­launum fyrir tryggð

Við ætlum að verð­launa fyrir tryggð og erum að innleiða nýtt vild­ar­kerfi. Við erum þakklát fyrir viðskipta­vini okkar ─ og viljum sýna það í verki. VÍS er því fyrst íslenskra trygg­inga­fé­laga til að verð­launa fyrir tryggð viðskipta­vina sinna með gagn­sæjum hætti. Í tengslum við nýtt vild­ar­kerfi kynnum við til sögunnar nýtt app þar sem hægt er að sjá hvernig kjör og fríð­indi breytast m.a. með aukinni viðskipta­lengd og fjölda trygg­inga. Í appinu verður einnig hægt að tilkynna tjón og sjá fjölda tilboða og annarra fríð­inda.

Við látum gott af okkur leiða

Við létum gott af okkur leiða á árinu en á hverju ári styrkjum við fjöl­mörg verk­efni. Nýsköp­un­ar­sjóð­urinn okkar er þar fremstur í flokki en tíu millj­ónum er úthlutað á hverju ári til forvarna­verk­efna sem snúa að nýsköpun og líkam­legri og andlegri heilsu.

Eftir­talin verk­efni hlutu styrk á árinu frá Nýsköp­un­ar­sjóði VÍS:

  • Stígamót hlaut 3,5 millj­ónir til styrktar verk­efninu Sjúkt spjall, sem er nafn­laust netspjall fyrir ungmenni til að ræða áhyggjur af samböndum, samskiptum eða ofbeldi. 

  • Jákvæð karl­mennska hlaut 3,5 millj­ónir til að vekja athygli á hvers vegna jákvæð karl­mennska styður við jafn­rétti og hvernig skaðleg karl­mennska bitnar á strákum og körlum.  

  • Reið­hjóla­skrá hlaut 2,7 millj­ónir til að auðvelda tilkynn­ingu stol­inna hjóla og koma þeim aftur til eigenda sinn­a.  

Að lokum, bestu þakkir fyrir viðskiptin og samfylgdina á árinu sem senn er á enda. Ég óska þér og þínum farsældar og öryggi á nýju ári.

Með hátíð­arkveðju,

Helgi Bjarna­son, forstjóri VÍS

Fréttasafn
Deila frétt