Fréttasafn

|

12.01.2022

Eru þínar bíla­trygg­ingar að lækka?

Tæpt ár er síðan VÍS kynnti Ökuvísi til leiks. Á þeim tíma höfum við séð að viðskipta­vinir okkar sem eru með Ökuvísi hafa bætt akstur sinn umtals­vert meira en upphaf­legar áætlanir okkar gerðu ráð fyrir. Betri akstur leiðir til færri slysa og tjóna og því sjáum við nú svigrúm til að lækka verð enn frekar til þeirra sem keyra vel og eru með háa einkunn í Ökuvísi, þ.e. með einkunnina 87 og hærri.

Við viljum fækka slysum í umferð­inni

Fram­tíð­arsýn okkar er sú að VÍS verði staf­rænt þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem breytir því hvernig trygg­ingar virka ─ og fækki tjónum. Með forvarnir að leið­ar­ljósi stuðlum við að því að viðskipta­vinir okkar lendi síður í tjónum. Í stað þess að bíða eftir að slysin eigi sér stað, viljum við koma í veg fyrir þau.

Keyra betur ─ borga minna

Ökuvísir er annar valkostur í bíla­trygg­ingum þar sem hægt er að fá aðgang að appi sem veitir virka endur­gjöf um hvað megi gera betur í umferð­inni. Ökuvísir er eina bíla­trygg­ingin á Íslandi þar sem  ein­ungis tveir þættir hafa áhrif á verðið, þ.e. hvernig þú keyrir (akst­ur­s­ein­kunn) og hversu mikið þú keyrir. Akst­ur­s­ein­kunn byggir á fimm þáttum; hraða, hröðun, beygjum, hemlun og síma­notk­un. Því betur og minna sem viðskipta­vinir okkar keyra, því minna borga þeir. Þetta er því mun einfaldari verð­skrá en verð­skrá fyrir hefð­bundna bíla­trygg­ingu. Í hefð­bund­inni verð­skrá hefur til dæmis litur, hestöfl sem og orku­gjafi bílsins áhrif á hvað hver og einn borgar fyrir trygg­ing­una. Verð­skráin er því einfaldari og gagn­særri en hún hefur nokkurn tímann verið.

Lækkum verð trygg­inga í Ökuvísi

Það gleður okkur að segja frá því að ákveðið hefur verið að lækka verð hjá þeim eru með háa einkunn í Ökuvísi, þ.e. með einkunnina 87 og hærri. Þess má geta að meðal­ein­kunn ökumanna með Ökuvísi er í dag yfir 90.  Reynslan sýnir okkur að góður akstur minnkar líkurnar á slysum í umferð­inni. Við getum því með sanni sagt að Öku­vísir virkar og viljum að viðskipta­vinir okkar njóti góðs af þessum góða árangri. Öruggur akstur marg­borgar sig!

Lækk­unin tekur strax gildi

Þetta þýðir að þeir sem eru með 100 í einkunn fá um 17% lækkun —  og þetta getur orðið enn meiri lækkun ef keyrt er minna en 500 km innan ­mán­aðar. Þá er ekkert til fyrir­stöðu að keyra vel og borga minna. Þessi lækkun hefur nú þegar tekið gildi. Viðskipta­vinir okkar ættu að sjá lækk­unina við næstu mánað­ar­mót.

Helgi Bjarna­son, forstjóri VÍS:

„Við viljum fækka bílslysum á Íslandi og höfum mikla trú á Ökuvísi. Því gleður okkur að sjá hversu mikið viðskipta­vinir okkar hafa bætt akst­urinn ─ sem veitir okkur nú svigrúm til þess að lækka verðið fyrir bíla­trygg­ingar í Ökuvísi. Málið snýst einfald­lega um að keyra vel og borga minna. Hægt er að sjá á vis.is hvað trygg­ingin kostar. Verð­skrá fyrir bíla­trygg­ingar hefur því aldrei verið jafn skýr og gagnsæ. Við ætlum að breyta því hvernig trygg­ingar virka ─ og Ökuvísir er svo sann­ar­lega gott dæmi um það.“

Þú getur prófað Ökuvísi í fjórtán daga án þess að kaupa trygg­inguna og þannig fengið vísbend­ingu um akst­ur­s­ein­kunn þína. Skoðaðu hvað trygg­ingin kostar miðað við mismun­andi akst­ur­s­ein­kunn.

Fréttasafn
Deila frétt