Fréttasafn

|

27.09.2022

Endur­kröfur 2021

Í lögum um ökutækja­trygg­ingar kemur fram að ef ökumaður veldur tjóni af stór­kost­legu gáleysi eða ásetn­ingi skal endurkrefja hann um bætur sem hafa verið greiddar af trygg­inga­fé­lagi vegna tjóns­ins.

Endur­kröfu­nefnd, sem skipuð er af fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ákveður hvort og hversu mikið eigi að endurkrefja. Nefndin hefur sent frá sér tölur fyrir árið 2021 og samkvæmt þeim voru endur­kröfur vá­trygginga­fé­laga á öku­menn vegna tjóns sem þeir ollu af á­setningi eða stór­kost­legu gá­leysi rúm­lega 171 millj­ónir. Hæsta krafan nam 6,5 millj­ónum króna en sú næst hæsta 5,9 millj­ónum. Alls bárust nefnd­inni 175 mál til úr­skurðar. Af þessum málum sam­þykkti nefndin endur­kröfu að öllu leyti eða að hluta í 158 málum.

Í þeim 80 til­vikum, þar sem mælt var fyrir um endur­kröfu vegna ölvunar, reyndust 75 öku­menn, eða rúm 80 prósent þeirra, vera með svo mikið vín­anda­magn í blóði að þeir töldust með öllu ó­hæfir til að stjórna öku­tækinu.

Öku­menn, sem voru 25 ára og yngri er þeir ollu tjóni, áttu hlut að um 23 prósentum mála á árinu.

Á árinu 2021 voru á­stæður endur­kröfu oftast ölvun eða í 93 til­vikum. Lyfja­á­hrif var næst al­gengasta á­stæða endur­kröfu. Voru þau til­vik 53. Í 12 málum voru öku­menn endur­krafðir vegna öku­réttinda­leysis. Fimm voru krafðir um endur­kröfu vegna ofsa- eða glæfra­aksturs, einn vegna stór­kost­legs gá­leysis, einn vegna brots á var­úðar­reglu og notk­unar far­síma, og sex vegna stór­fellds van­búnaðar öku­tækisins eða farms þess.

Nánari upplýs­ingar um endur­kröfu­ferlið.

Fréttasafn
Deila frétt