Fréttasafn

|

23.07.2021

VÍS hlýtur alþjóðleg verð­laun fyrir Ökuvísi

Global Banking & Finance Review® verð­launar VÍS fyrir framúrsk­ar­andi nýsköpun í þjón­ustu og vöru­þróun

VÍS hlýtur erlend verð­laun fyrir eftir­tekt­ar­verða nýsköpun í þjón­ustu og vöru­þróun á meðal trygg­inga­fé­laga á Íslandi á árinu 2021 ─ en VÍS kynnti Ökuvísi til sögunnar fyrr á árinu. Ökuvísir er ökutækja­trygging þar sem hugmyndin er að umbuna fyrir góðan og öruggan akstur. Umfangs­mikil vöru­þróun átti sér stað á síðasta ári í samstarfi við viðskipta­vini félagsins en mark­miðið með Ökuvísi er að fækka bílslysum á Íslandi ─ samfé­laginu til heilla.

Ökuvísir er bylt­inga­kennd nýjung hér á landi en viðskipta­vin­irnir stjórna ferð­inni í fyllstu orðsins merk­ingu. Því betur og minna sem viðskipta­vinir félagsins keyra, því minna borgar þeir. Viðskipta­vinum er því umbunað fyrir góðan og lítinn akstur. Viðskipta­vin­irnir fá uppbyggi­lega endur­gjöf í appinu eftir hverja ferð ─ og akst­ur­s­ein­kunnin byggir á eftir­far­andi þáttum:

  • Hraða

  • Hröðun

  • Hraða í beygjum

  • Hemlun

  • Síma­notkun undir stýri

Ökuvísir hefur fengið frábærar viðtökur hjá viðskipta­vinum VÍS ─ en appið var það vinsæl­asta á Íslandi þegar það kom út.

Wanda Rich, ritstjóri Global Banking & Finance Review:
„Öku­vísir er ein frum­leg­asta nýjung á trygg­inga­markaði sem ég hef orðið vitni að. Ökuvísir hefur alla burði til þess að umbylta hefð­bundnum trygg­ingum. Ég hlakka því til að sjá fleiri bylt­ing­ar­kenndar nýjungar frá VÍS í fram­tíð­inni.“

Helgi Bjarna­son, forstjóri VÍS:
„Við erum gríð­ar­lega ánægð með hvernig til tókst með Ökuvísi og því er einkar ánægju­legt að fá viður­kenn­ingu sem þessa. Fram­tíð­arsýn félagsins er sú, að verða staf­rænt þjón­ustu­fyr­ir­tæki og Ökuvísir er mikilvæg varða á þeirri leið. Þessi viður­kenning hvetur okkur því áfram ─ og hvetur okkur líka til þess að halda áfram að breyta því hvernig trygg­ingar virka.” Um verð­launin Frá árinu 2011, hefur Global Banking & Finance Review’s verð­launað framúrsk­ar­andi fyrir­tæki víðs vegar um heim­inn. Nánari upplýs­ingar um verð­launin má finna hér.

Fréttasafn
Deila frétt