Fréttasafn

|

26.11.2021

VÍS tekur þátt í staf­rænum mánu­degi

VÍS ­tekur þátt í sta­f­rænum mánu­deg­i (e. Cyber Monday) og gerir það í fyrsta sinn! 

Hægt er að kaupa Ökuvísi á stafrænum mánudegi og fá gjafakort hjá Íslandsbanka

Staf­rænn mánu­dag­ur er fyrsti mánu­dag­urinn eftir­ svartan föstudag (e. Black Friday) sem er 29. nóvember næst­kom­andi. Dagur­inn er farinn að festa sig ræki­lega í sessi sem einn stærst­i ­net­versl­un­ar­dag­ur­inn hér á land­i ─ enda bjóða mörg fyrir­tæki upp á góð tilboð í vefversl­unum sínum. 

Eins og áður verður hægt að kaup­a Öku­vísi í appin­u ─ en þeir sem tryggja sér Öku­vísi á staf­rænum mánu­degi fá að auki 15.000 króna gjafa­bréf frá Íslands­banka. Tilboðið gildir í einn ­sól­ar­hring, eð­a frá miðnætti aðfaranótt mánu­dags­ins 29. nóvem­ber til miðnættis aðfar­arnótt þriðju­dags. 

Ökuvís­ir er ­bylt­ing­ar­kennd öku­tækja­trygg­ing 

Ökuvísir er fyrsta ökutækja­trygg­ingin á heimsvísu þar sem verðið byggir eingöngu á akstr­inum. Því minn­a ─ og betur ─ sem viðskipta­vinir okkar keyra, því minna borga þeir. Við­skipta­vin­irnir stjórna því ferð­inni, í orðsins fyllstu merk­ing­u. Við­skipta­vinir fá end­ur­gjöf á akst­urinn með Öku­vís­is appinu — og allt kapp er lagt á að gera upplif­unina sem besta. Appið er einfalt í notkun og nýtir hugmynda­fræð­i ­leikj­un­ar­ eða leikja­væð­ingar, sem kall­ast gamificati­on á ensku, á snjallan og nýstár­legan máta. 

Ökuvís­ir hefur vakið ­mikla ­at­hygli fyrir frum­lega og nýstár­lega nálgun í ökutækja­trygg­ing­um þar sem viðskipta­vinum er verð­launað fyrir lítinn og góðan akst­ur ─ með lægri iðgjöld­um. Þess ber að geta að Öku­vís­ir hlaut nýleg­a al­þjóðleg nýsköp­un­ar­verð­laun á vegum ­tæknifyr­ir­tæk­is­ins Outsystems. Þetta var í fyrsta skiptið sem ­verð­laun­að var ­fyrir nýsköpun í vöru­þróun (e. Product ­Innovati­on) — og Öku­vís­ir varð fyrir valin­u! Öku­vís­ir var því valinn úr hópi annarra eftir­tekt­ar­verðra erlendra staf­rænna tækninýj­unga. 

„Við erum á staf­rænni vegferð og ætlum að breyta því hvernig trygg­ingar virka. Öku­vís­ir er gott dæmi um það" sagði Ingi­björg Ásdís Ragn­ars­dóttir, mark­aðs­stjóri VÍS.  „Þess vegna fannst okkur kjörið að bjóða upp á staf­ræna vöru á staf­rænum mánu­deg­i! Við erum full­viss um að enn fleiri við­skipta­vinir okkar eigi eftir að grípa tæki­færið og tryggja sér öku­tækja­trygg­ingu hjá VÍS. Öku­vís­ir snýst ­nefni­leg­a um ­að keyra betur ─ og ­borga minna“ sagði hún jafn­ramt. 

Fréttasafn
Deila frétt