Fréttasafn

|

17.11.2021

OutSystems velur Ökuvísi sem nýsköpun ársins

Í gær hlaut VÍS alþjóðleg nýsköp­un­ar­verð­laun fyrir Ökuvísi — en tæknifyr­ir­tækið OutSystems veitti verð­launin.

Mörg þekkt alþjóðleg fyrir­tæki voru einnig tilnefnd og því er þetta mikil viður­kenning fyrir VÍS. Áður hafa fyrir­tæki á borð við Banco Sant­ander, bswift, Cert­is, ­Med­tronic, New York Life Insurance, Union Bank of the Phil­ipp­ines unnið nýsköp­un­ar­verð­laun Outsystems.

Verð­launað fyrir framúrsk­ar­andi nýjungar

OutSystems verð­launar fyrir framúrsk­ar­andi staf­rænar tækninýj­ungar sem byggja á tækni­lausnum fyrir­tæk­is­ins. Veitt eru verð­laun í sjö flokkum en þetta er í fyrsta skipti sem verð­launað er fyrir nýsköpun í vöru­þróun (e. Product Innovation) — og Ökuvísir varð fyrir valinu! Hann var valinn úr hópi annarra eftir­tekt­ar­verðra erlendra staf­rænna tækninýj­unga.

Nálgun sem þykir frumleg og skemmtileg

Ökuvísir hefur vakið athygli fyrir frum­lega og nýstár­lega nálgun í ökutækja­trygg­ingum. Viðskipta­vinum er verð­launað fyrir lítinn og góðan akstur með lægri iðgjöldum. Viðskipta­vinir fá endur­gjöf á akst­urinn með Ökuvísis appinu — og allt kapp er lagt á að gera upplif­unina sem besta. Appið er einfalt í notkun og nýtir hugmynda­fræði leikj­unar eða leikja­væð­ingar, sem kallast gamification á ensku, á snjallan og nýstár­legan máta. Þessi nálgun þykir frumleg og skemmti­leg.  

Athygli er vakin á því að vöru­þró­unin á Ökuvísi tók einungis fjóra mánuði en slík vöru­þróun tekur oftast mun lengri tíma. Þess ber að geta að mikil áhersla er lögð á nýsköpun hjá VÍS og reglu­lega eru haldnir staf­rænir sprettir þar sem starfs­menn mismun­andi deilda eru virkj­aðir til þess að leysa fjöl­breytt verk­efni, fljótt og vel. Samstarfs­að­ilar VÍS í vöru­þró­un­inni á Ökuvísi voru OutSystems, Deloitte og CMT.

Rökstuðn­ingur fyrir valinu

Í rökstuðn­ingi fyrir valinu kemur fram að Ökuvísir þykir frumleg og djörf nýsköpun — þar sem  iðgjöldin byggjast eingöngu á eknum kíló­metrum sem og akst­urslagi ─  en hefð­bundnar gjald­skrár fyrir ökutækja­trygg­ingar byggja á áhættumati. Áherslan á forvarnir vakti athygli og þótti einnig góð — sem og leikj­unin í appinu. Tíma­lengd verk­efn­isins vakti líka athygli en afurðin þótti framúrsk­ar­andi eftir einungis fjög­urra mánaða vöru­þróun. Athygli vakti hversu vel hafi tekist til — þrátt fyrir ýmsar áskor­anir heims­far­ald­urs­ins.

Guðný Helga Herberts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Staf­rænnar þróunar, var að vonum ánægð með verð­launin: „Þetta er mikil viður­kenning fyrir VÍS og mikill heiður að hljóta þessi nýsköp­un­ar­verð­laun! Við erum nú í hópi alþjóð­legra þekktra fyrir­tækja sem hlotið hafa þessi verð­laun. Við erum á staf­rænni vegferð og ætlum að breyta því hvernig trygg­ingar virka. Ökuvísir er svo sann­ar­lega gott dæmi um hvernig hægt er að hugsa hefð­bundnar trygg­ingar upp á nýtt og gera þær skemmti­legri! Við erum því þakklát fyrir þessa verð­laun — því þau stað­festa að við séum á réttri leið.“

Carlos Alves, fram­kvæmda­stjóri OutSystems, sagði Ökuvísi gott dæmi um djarfa nýsköpun sem varð að veru­leika á skömmum tíma: „Við verðum fyrir stöð­ugum innblæstri af afrekum viðskipta­vina okkar og hvernig þeir nota tækni­lausn­irnar okkar til þess að gera stór­kost­lega hluti. VÍS og nýjasta útspil þeirra, Ökuvísir, er frábært dæmi um djarfa nýsköpun sem var hrint í fram­kvæmd á undra­verðum hraða! Til hamingju VÍS og samstarfs­að­ilar með að hafa unnið þessi verð­laun!“

Við erum auðvitað í skýj­unum með þessa viður­kenn­ingu! Varstu ekki örugg­lega búinn að tryggja þér Ökuvísi? Þú getur prófað í tvær vikur án allra skuld­bind­inga. Einfalt og þægi­legt, ekki satt? Smelltu hér til þess að prófa Ökuvísi

Fréttasafn
Deila frétt