Fréttasafn

|

28.01.2020

Óvissu­stig vegna landriss á Reykja­nesi

Vegna óvissu­stigs á Reykja­nesi viljum við koma eftir­far­andi upplýs­ingum um trygg­ingar og forvarnir á fram­færi.

Nátt­úru­ham­fara­trygging Íslands bætir tjón á öllum bruna­tryggðum húseignum sem verða fyrir tjóni vegna eldgoss og jarð­skjálfta.  Trygg­ingin bætir einnig tjón á innbúi og öðrum innan­stokks­munum ef bruna­trygging er til staðar á hjá trygg­ing­ar­fé­lagi.

Við hvetjum einstak­linga og fyrir­tæki til þess að fara vel yfir trygg­ingar sínar og athuga hvort þær endur­spegli raun­veruleg verð­mæti þess sem þær eiga að tryggja.

Innbú

  • F plús felur í sér bruna­trygg­ingu og þar af leið­andi bætir Nátt­úru­ham­fara­trygging Íslands tjón sem verða vegna eldgoss og jarð­skjálfta.

  • Inni á undir F plús á skír­teininu getur þú séð innbús­verð­mæti þitt.

  • Mikil­vægt er að skoða hvort skráð innbús­verð­mæti endur­spegli verð­mæti þess. 

Lausa­fjár­trygging

  • Lausa­fjár­trygg­ingu felur hún í sér bruna­trygg­ingu og þar af leið­andi bætir Nátt­úru­ham­fara­trygging Íslands tjón sem verða vegna eldgoss og jarð­skjálfta. 

Húseignir

  • Bruna­trygg­ing, sem er skyldu­trygg­ing, felur í sér að Nátt­úru­ham­fara­trygging Íslands bætir tjón sem verða vegna eldgoss og jarð­skjálfta.

  • Ef bruna­bótamat endur­speglar ekki verð­mæti húsnæð­isins þá er hægt að kaupa viðbót­ar­bruna­trygg­ingu.

Bílar

  • Nátt­úru­ham­fara­trygging bætir ekki tjón á bílum.

  • Kaskó bætir ekki tjón vegna jarð­skjálfta eða eldgoss.

  • Hægt er að kaupa lausa­fjár­trygg­ingu fyrir bíla sem bætir tjón m.a. vegna eldgoss og jarð­skjálfta. Hægt er að taka hana til lengri eða skemmri tíma og bætir VÍS tjón úr henni. 

Vinnu­vélar

  • Í bruna­trygg­ingu vinnu­véla og kaskó­trygg­ingu vinnu­véla er hægt að bæta við trygg­ingu vegna eldgoss og jarð­skjálfta. 

Biðjum þá sem vilja breyta trygg­ingum hjá sér að senda póst á vis@vis.is 

Eins hvetjum við alla til þess að gera ráðstaf­anir á heim­ilinu og vinnu­staðnum. Gera allt eins öruggt og kostur er. Hægt er að finna góðar upplýs­ingar um það hér.

Fréttasafn
Deila frétt