Fréttasafn

|

09.11.2018

Kviknaði í út frá brauð­rist

Bruni varð á heimili viðskipta­vina okkar þegar börn voru að rista brauð eftir skóla. Brauð­ristin stóð á sér og skilaði brauðinu ekki upp. Eldur kviknar en börnin ná að taka úr sambandi, setja eldvarna­teppi yfir, hringja og koma sér út. Allt eins og hægt er að ætlast til af börnum. Eldvarna­teppið dugar ekki og lætur undan hitanum. Eldurinn breiðist út og ekki mátti miklu muna í tíma að slökkvilið hefði illa ráðið við aðstæður þegar það mætti.

Tölu­vert tjón varð á húsi og innan­stokks­munum eins og myndir bera með sér en það sem mestu máli skiptir er allir sluppu heilir út. Flest annað er hægt að bæta. Þessi bruni minnir okkur enn og aftur á að eldur getur kviknað út frá hvaða rafmagns­tæki sem er. Fæstir líta á brauð­ristina sem líklegan bruna­vald, horfa frekar á kerti og notkun elda­vélar sem eru algengir bruna­valdar á heim­ilum.

Nú fer sá tími í hönd þar sem brunum á heim­ilum eru flestir. Við hvetjum alla til að fara með gát og vera meðvitaða um bruna­hættur heim­il­is­ins. Tryggja þarf að eldvarnir séu í lagi og að allir viti hvernig eigi að bregðast við ef eldur kviknar með það að leið­ar­ljósi að heim­il­is­fólk komist heilu á höldnu út.

Bruni út frá brauð­rist

Fréttasafn
Deila frétt