Starfsábyrgðartrygging arkitekta
Starfsemi arkitekta lítur oft á tíðum að flóknum úrlausnarefnum og varðar mikla hagsmuni. Starfsábyrgðartrygging arkitekta getur því verið mikilvægur hlekkur í slíkri starfsemi en tryggingunni er ætlað að bæta almennt fjártjón sem stafar af gáleysi arkitekta.
Tryggingin byggir á kröfugerðarreglu. Það þýðir að krafa eða vitneskja um kröfu þarf að hafa borist á meðan vátryggingin er í gildi. Þó er það ekki skilyrði að vátryggingin hafi verið í gildi þegar atburðurinn, sem olli tjóninu, átti sér stað.
Tryggingin bætir
- Almennt fjártjón sem leiðir af gáleysi.
Tryggingin bætir ekki
- Tjón sem aðrar ábyrgðar eða starfsábyrgðartryggingar taka til.
- Tjón sem rekja má til eigin byggingastarfsemi vátryggðs.
- Tjón þegar notast er við nýtt óreynt efni, hönnun, aðferð eða útbúnað.
- Tjón sem hlýst af glötuðum skjölum og gögnum.
- Tjón sem hlýst af samþykki eða synjun á efnisvali við eftirlitsstörf.
- Afleidd tjón.
- Tjón sem rekja má til fjárhagslegra ráðlegginga svo sem kostnaðaráætlun verks eða áætlaðan framkvæmdartíma.
- Líkamstjón eða skemmdir á munum.
- Sektir og önnur viðurlög.
- Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
- Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.