Slysatrygging skólabarna
Slysatrygging skólabarna er fyrir sveitarfélög sem vilja tryggja börn sveitarfélagsins á meðan þau eru í skólanum og viðburðum á vegum skólans. Með skóla er átt við grunnskóla, leikskóla, dagskóla, sundnámskeið og gæsluvelli. Tryggingin gildir einnig þegar börn eru á leið í og úr skólanum.
Tryggingin greiðir bætur vegna slyss sem leiðir til þess að skólabörn verða fyrir varanlegri örorku eða slyss sem leiðir til andláts. Hún bætir einnig tannbrot og kostnað vegna slysa sem fæst ekki greiddur hjá Tryggingastofnun ríkisins.
Tryggingin greiðir
- Bætur vegna andláts.
- Örorkubætur ef skólabörn ná sér ekki að fullu eftir slys.
- Kostnað vegna tannbrots.
- Kostnað vegna slysa sem fæst ekki greiddur hjá Tryggingastofnun ríkisins.
Tryggingin greiðir ekki
- Kostnað vegna slysa sem verða í frítíma barna, þ.e. þegar þau eru ekki í skólanum eða á viðburðum á vegum skólans.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Árlega færðu upplýsingar frá okkur varðandi endurnýjun trygginga þinna. Sjá nánar á síðunni endurnýjun trygginga sem finna má hér fyrir neðan.