Rekstrarstöðvunartrygging
Rekstrarstöðvunartrygging bætir rekstrartap sem verður við stöðvun rekstrar og leiðir af sér samdrátt í sölu eða þjónustu. Tryggingin bætir tjón vegna bruna en einnig er hægt að bæta við vernd vegna vatnstjóna og innbrota.
Skylt er að til staðar sé brunatrygging á lausafé svo hægt sé að sækja í rekstrarstöðvunartryggingu. Hægt er að kaupa aukakostnaðartryggingu sem viðbót við rekstrarstöðvunatrygginguna en einnig er hægt að kaupa aukakostnaðartrygginguna staka.
Sækja um trygginguna
- Sótt er um trygginguna með því að fylla út rafræna umsókn og láta fylgiskjal umsóknarinnar fylgja með (excel skjal).
- Eyðublaðið er undiritað rafrænt.
- Þegar umsóknin hefur verið metin höfum við samband og látum þig vita hvað tryggingin kostar.
- Tryggingin er svo gefin út með þínu samþykki.
Tryggingin bætir
- Tjón vegna bruna.
- Vatnstjón, skyndilegt úrhelli og asahláku og leka á olíu eða kælivökva.
- Tjón vegna innbrots.
Tryggingin bætir ekki
- Þann hluta tjónsins sem fellur undir eigin áhættu.
- Aukið rekstrartap vegna verkfalla, vélabilunar, rekstrartafa vegna endurbóta, stækkunar eða fyrirmæla hins opinbera.
- Rekstrartap sem hlýst af almennum samdrætti í viðkomandi starfsgrein.
- Rekstrartap sem verður vegna breytinga á markaðsstöðu eða sökum fjármagnsskorts.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Árlega færðu upplýsingar frá okkur varðandi endurnýjun trygginga þinna. Sjá nánar á síðunni endurnýjun trygginga sem finna má hér fyrir neðan.