Lögboðin starfsábyrgðartrygging vegna starfrækslu bílaleigu
Lögboðin starfsábyrgðartrygging vegna starfrækslu bílaleigu hefur það hlutverk að bæta tjón t.d. vegna afhendingartafa og endurgreiðslu fyrirframgreidds fjár sökum rekstrarstöðvunar eða gjaldþrots ökutækjaleigu. Einungis skal greiða bætur fyrir beint fjárhagslegt tjón leigutaka en ekki tjón sem rekja má t.d. til óþæginda eða miska.
Tryggingin byggir á kröfugerðarreglu. Það þýðir að krafa eða vitneskja um kröfu þarf að hafa borist á meðan tryggingin er í gildi. Ekki er þó skilyrði að tryggingin hafi verið í gildi þegar atburðurinn, sem olli tjóninu, átti sér stað.
Tryggingin bætir
- Almennt fjártjón vegna gáleysis.
Tryggingin bætir ekki
- Þann hluta tjónsins sem fellur undir eigin áhættu.
- Líkamstjón eða skemmdir á munum.
- Sektir og önnur viðurlög.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Árlega færðu upplýsingar frá okkur varðandi endurnýjun trygginga þinna. Sjá nánar á síðunni endurnýjun trygginga sem finna má hér fyrir neðan.