Lögboðin starfsábyrgðartrygging löggiltra hönnuða aðal- og séruppdrátta
Lögboðin starfsábyrgðartrygging löggiltra hönnuða aðal- og séruppdrátta hefur það hlutverk að bæta tjón sem slíkir hönnuðir kunna að valda í starfi sínu.
Tryggingin byggir á atvikareglu sem þýðir að tjónið þarf að hafa átt sér stað á því tímabili sem tryggingin var í gildi hjá félaginu. Ekki er þó gerð krafa um að tryggingin sé enn í gildi þegar tjón er sótt.
Tryggingin bætir
- Almennt fjártjón vegna gáleysis.
Tryggingin bætir ekki
- Þann hluta tjónsins sem fellur undir eigin áhættu.
- Líkamstjón eða skemmdir á munum.
- Sektir og önnur viðurlög sem kunna að falla á hönnuð.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Árlega færðu upplýsingar frá okkur varðandi endurnýjun trygginga þinna. Sjá nánar á síðunni endurnýjun trygginga sem finna má hér fyrir neðan.