Lögboðin starfsábyrgðartrygging leigumiðlara
Lögboðin starfsábyrgðartrygging leigumiðlara hefur það hlutverk að bæta tjón sem leigumiðlarar kunna að valda í starfi sínu.
Tryggingin byggir á atvikareglu sem þýðir að tjónið þarf að hafa átt sér stað á því tímabili sem tryggingin var í gildi hjá félaginu. Ekki er þó gerð krafa um að tryggingin sé enn í gildi þegar tjón er sótt.
Tryggingin bætir
- Almennt fjártjón vegna gáleysis.
Tryggingin bætir ekki
- Þann hluta tjónsins sem fellur undir eigin áhættu.
- Líkamstjón eða skemmdir á munum.
- Sektir og önnur viðurlög sem kunna að falla á leigumiðlara.
- Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
- Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.