Lögboðin starfsábyrgðartrygging græðara
Lögboðin starfsábyrgðartrygging græðara hefur það hlutverk að bæta tjón sem græðarar kunna að valda í starfi sínu.
Tryggingin byggir á kröfugerðarreglu. Það þýðir að krafa eða vitneskja um kröfu þarf að hafa borist á meðan tryggingin er í gildi. Þó er það ekki skilyrði að tryggingin hafi verið í gildi þegar atburðurinn, sem olli tjóninu, átti sér stað.
Tryggingin bætir
- Tjón skjólstæðings sem rekja má til gáleysis græðara í starfi.
Tryggingin bætir ekki
- Tjón sem tryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð hans sem græðara.
- Sektir og önnur viðurlög.
- Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
- Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.