Lögboðin starfsábyrgðartrygging byggingarstjóra
Lög mæla fyrir um að byggingarstjórar séu með í gildi starfsábyrgðartryggingu, enda beri þeir ábyrgð á störfum sínum sem sérfræðingar gagnvart viðskiptavinum sínum. Lögboðin starfsábyrgðartrygging byggingarstjóra hefur því það hlutverk að bæta tjón sem þeir kunna að valda í starfi sínu sem byggingarstjórar.
Tryggingin byggir á atvikareglu. Það þýðir að tjónsatburður þarf að hafa átt sér stað á tryggingatímabilinu en ekki er gerð krafa um að trygging sé enn í gildi þegar tjón er sótt.
Tryggingin bætir
- Almennt fjártjón eiganda mannvirkis vegna gáleysis byggingarstjóra.
Tryggingin bætir ekki
- Líkamstjón eða skemmdir á munum.
- Sektir og önnur viðurlög sem kunna að falla á byggingarstjóra.
- Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
- Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.